Intersex sigga dögg kynfræðingur skrifar 30. október 2014 13:00 Oprah Winfrey fjallar um málefni intersex í eftirfarandi þáttum. Mynd/Getty
Á Hinsegin Dögum í ár var vakin athygli á málefnum þeirra sem eru intersex í kjölfar stofnun samtaka intersex einstaklinga á Íslandi. Í greininni frá Reykjavík Pride tímaritinu er hún útskýrð á eftirfarandi hátt:Hvað er intersex?Intersex er regnhlífarhugtak sem nær yfir alla þá einstaklinga sem fæðast utan hinnar hefðbundnu skiptingar í karl- og kvenkyn. Það er bæði notað um fólk sem er útlitslega öðruvísi en „venjulegar“ konur og karlar, aðallega með tilliti til kynfæra, sem og fólk sem er með öðruvísi kynlitningasamsetningu en talið er venjulegt án þess að það sjáist endilega á útliti þess. Þá er um að ræða karla sem ekki eru með XY-litninga og konur sem ekki eru með XX-litninga, heldur fólk með til dæmis XO-litninga, XXX, XXY, XYY og svo framvegis.Intersex-hugtakið er mjög vítt og nær yfir margs konar ólíkar greiningar. Intersex-ástand er greint á tvennan hátt. Stundum sést að útlit ytri kynfæra samsvarar ekki venjulegum kynfærum karla eða kvenna. Hins vegar, og það er mun algengara, kemur intersex-ástand í ljós með kynlitningagreiningu, til dæmis þegar fólk leitar til læknis vegna ófrjósemi. Fólk með óræð ytri kynfæri er því bara hluti af þeim margbreytilega hópi sem er intersex. Oprah Winfrey spjallaði við nokkra intersex einstaklinga og deildu þeir með henni sögu sinni. Ef þig langar að fræðast meira þá er heimildarmyndin Intersexion sem var sýnd á Hinsegin dögum 2014 alveg frábær. Til að kynnast starfsemi intersex félagsins er hægt að senda þeim tölvupóst intersex hjá samtokin78.is
Heilsa Lífið Tengdar fréttir Það eru margir intersex án þess að hafa hugmynd um það Barn með „óþægileg“ kynfæri er best að skera, teygja, sauma, dæla í hormónum og lyfjum, segja foreldrunum hvernig skuli ala það upp og gera barnið svo að ævilöngum spítalagesti 7. ágúst 2014 12:00 Út fyrir rammana 9. ágúst 2014 07:00 Mest lesið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Spila í fyrsta sinn á Þjóðhátíð Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Hlátrasköll og bongótrommur á forsýningu Alheimsdraumsins Lífið Pétur og Elísabet tóku fallegt parhús í 101 í gegn Lífið Vatnsdeigsbollur með Dúbaí-fyllingu: „Þið verðið að prófa“ Lífið Avowed: Í senn hefðbundinn og framúrskarandi hlutverkaleikur Leikjavísir Hugsi yfir reynslulausum sérfræðingum Lífið
Það eru margir intersex án þess að hafa hugmynd um það Barn með „óþægileg“ kynfæri er best að skera, teygja, sauma, dæla í hormónum og lyfjum, segja foreldrunum hvernig skuli ala það upp og gera barnið svo að ævilöngum spítalagesti 7. ágúst 2014 12:00