Bjargaði dóttur sinni úr röðum ISIS Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2014 22:56 Monique lýsti því hvernig dóttir hennar breyttist úr því að vera venjuleg, hollensk táningsstúlka í róttækan múslíma á skömmum tíma.
Hollensk móðir hefur bjargað dóttur sinni úr röðum ISIS eftir að hún hélt til sýrlensku borgarinnar Raqqa og fór með hana aftur til Hollands. Stúlkan yfirgaf fjölskyldu sína fyrr á árinu til að ganga til liðs við sveitir ISIS og giftast einum af vígamönnum samtakanna. Í frétt BBC segir að dóttir konunnar, Aicha, sé á táningsaldri og að hún hafi komist í samband við liðsmenn ISIS í gegnum samfélagsmiðla. Í viðtali við hollenska sjónvarpsstöð lýsti móðirin, Monique, því hvernig dóttir hennar hafi breyst úr því að vera venjuleg, hollensk táningsstúlka í róttækan múslíma á skömmum tíma. Lögmaður Aichu segir í samtali við BBC að skjólstæðingur sinn hafi verið handtekinn við komuna til heimaborgarinnar Maastricht í síðustu viku. Aicha yfirgaf Holland í febrúarmánuði til að giftast Omar Yilmaz, hollensk-tyrkneskum íslamista, sem hafði áður verið í hollenska hernum en síðar gengið til liðs við ISIS. „Hún leit á hann sem einhvers konar Hróa hött,“ útskýrir móðir Aichu, Monique. Ekki er greint nákvæmlega frá því hvernig Monique tókst að fá dóttur sína frá Raqqa, en ljóst er að það tókst ekki í fyrstu tilraun. Upphaflega hélt hún til Tyrklands í október en tókst þá ekki að halda yfir landamærin til Sýrlands. Aicha er ein af fjölmörgum evrópskum stúlkum og konum sem hafa farið til Sýrlands og Íraks til að ganga til liðs við sveitir ISIS. Talið er að þær skipti fleiri hundruðum, ef ekki þúsundum.
Mið-Austurlönd Mest lesið „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira