Fótbolti

Rúrik í byrjunarliðinu í sigri á toppliðinu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Rúrik Gíslason
Rúrik Gíslason vísir/vilhelm
Rúrik Gíslason lék fyrstu 86. mínúturnar þegar FC Kaupmannahöfn lagði Midtjylland 2-0 á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

FCK lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er átta stigum á eftir toppliði Midtjylland.

FCK komst yfir með sjálfsmarki fjórum mínútum fyrir hálfleik og bætti öðru marki við á sömu mínútu og Rúrik var skipt útaf. Þriðja markið kom á síðustu mínútu leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×