Matthías: Alfreð er ekki nógu duglegur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. janúar 2015 12:05 Matthías hefur skorað tvö mörk í 13 landsleikjum fyrir Íslands hönd. mynd/heimasíða start
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Start í Noregi, stóð fyrir sínu í tveimur vináttulandsleikjum Íslands og Kanada fyrir skömmu. Matthías, sem er 27 ára, skoraði annað mark Íslands í 2-1 sigri í fyrri leiknum og fiskaði vítaspyrnuna sem Hólmbert Aron Friðjónsson jafnaði úr í seinni leiknum sem lyktaði með 1-1 jafntefli. „Þetta gekk mjög vel,“ sagði Matthías í samtali við Aftenbladet í Noregi og bætti við að hann hefði verið nálægt því að skora sigurmarkið í seinni leiknum. „Það var bjargað á línu frá mér,“ sagði Matthías sem lék með FH áður en hann hélt til Noregs í atvinnumennsku. Hann vonast til að hafa heillað landsliðsþjálfarana með frammistöðu sinni í leikjunum gegn Kanada. „Ég vona að Lars Lagerbäck hafi nóg að hugsa um. Ísland á marga góða framherja,“ sagði Matthías sem segir leikstíll hans henti íslenska landsliðinu vel þar sem landsliðsþjálfararnir vilji spila með tvo duglega framherja. Matthías segir það ástæðuna fyrir takmörkuðum spilatíma Alfreðs Finnbogasonar með landsliðinu. „Hann skoraði grimmt í Hollandi síðustu tvö tímabil en hann spilar ekki með landsliðinu því hann er ekki nógu duglegur,“ sagði Matthías en Alfreð kom t.a.m. ekkert við sögu þegar Ísland tapaði 2-1 fyrir Tékklandi í undankeppni EM 2016 í nóvember á síðasta ári.Alfreð skoraði mark Íslands í 3-1 tapi gegn Belgíu í nóvember.vísir/afp
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors Sport Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Fótbolti Hætt eftir drónaskandalinn Fótbolti Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Handbolti Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Handbolti Keflavík semur við leikmann sem hefur skorað tvö stig í úrslitaeinvígi NBA Sport Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Íslenski boltinn Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Fótbolti Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Enski boltinn Fleiri fréttir Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Sjá meira