Cavani bjargaði PSG í París | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. febrúar 2015 16:33 Branislav Ivanovic skorar mark Chelsea. Vísir/Getty
PSG mátti sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Chelsea í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Bæði mörk leiksins voru skoruð með skalla. Branislav Ivanovic kom Chelsea yfir eftir undirbúning John Terry og Gary Cahill á 36. mínútu en Edinson Cavani jafnaði metin fyrir PSG eftir sendingu Blaise Matuidi snemma í síðari hálfleik. Leikurinn byrjaði rólega en mark Chelsea hleypti lífi í leikinn. Heimamenn fengu svo betri færi í síðari hálfleik en náðu ekki að skora aftur fram hjá hinum öfluga Thibaut Courtois í marki þeirra ensku. Cavani og Zlatan Ibrahimovic fengu báðir færi til að skora en allt kom fyrir ekki. David Luiz, sem var seldur frá Chelsea til PSG í sumar, spilaði á miðjunni í kvöld og var næstum búinn að skora gegn sínu gamla félagi er hann skallaði fyrirgjöf Lavezzi að marki en Courtois náði að blaka boltanum yfir markið. Jose Mourinho og lærisveinar hans gátu því gengið sáttir frá velli en úrslitin þýða að PSG verður að skora á Stamford Bridge í síðari leik liðanna, þann 11. mars, til að komast áfram í fjórðungsúrslit keppninnar. Mörk leiksins má sjá hér fyrir neðan.Branislav Ivanovic kom Chelsea yfir seint í fyrri hálfleik: Edinson Cavani jafnaði metin fyrir PSG á 54. mínútu:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Fleiri fréttir Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Sjá meira