Laurent Blanc: Ibra elskar svona leiki og efast aldrei Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2015 10:00 Zlatan Ibrahimovic. Vísir/Getty
Franska liðið Paris Saint-Germain er í erfiðri stöðu í seinni leik sínum á móti Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Barcelona vann fyrri leikinn 3-1 í Frakklandi og PSG þarf því að skora þrjú mörk á Nývangi í kvöld ætli liðið að eiga möguleika á því að komast áfram í undanúrslitin. „Ég er raunsær maður og þetta er einstaklega erfitt verkefni. Við höfum samt engu að tapa. Við verðum að skora mörk og ég trúi því innilega að við getum það," sagði Laurent Blanc, þjálfari PSG, í viðtali við Le Parisien. Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic kemur nú aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann í fyrsta leiknum. „Hann hefur mikil áhrif. Hann elskar svona leiki og efast aldrei. Hann er mjög góður leikmaður og öflugur markaskorari sem er mikilvægur fyrir hvaða lið sem er," sagði Blanc. „Ibra fékk frídag eftir úrslitaleikinn í deildabikarnum en hefur síðan æft á hverjum degi. Hann er í mjög góðu formi og ég er búinn að endurheimta sama leikmann og við vorum með í fyrra," sagði Blanc. Zlatan Ibrahimovic hefur verið mjög sigursæll á sínum ferli en hann hefur aldrei unnið Meistaradeildina. Leikur Barcelona og Paris Saint-Germain hefst klukkan 18.45 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira