Enginn Íslendingur í byrjunarliði norsku Víkinganna í fyrsta sinn í tæp tvö ár Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. apríl 2015 18:04 Indriði Sigurðsson, fyrirliði Viking missti af leik gegn Molde 13. júlí 2013, en þá var síðast enginn Íslendingur í byrjunarliði Viking. mynd/viking-fk.no
Norska úrvalsdeildarliðið Viking vann Sandefjord, 2-1, í fimmtu umferð deildarinnar í kvöld, en Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og fiskaði víti sem sigurmarkið var skorað úr. Enginn Íslendingur var í byrjunarliði norsku Víkinganna í kvöld sem er saga til næsta bæjar þar sem fjórir slíkir eru á mála hjá liðinu. Björn Daníel Sverrisson og Indriði Sigurðsson er frá vegna meiðsla og þeir Steinþór Þorsteinsson og Jón Daði Böðvarsson byrjuðu á bekknum. Í fyrra var Sverrir Ingi Ingason einnig í herbúðum Viking og spilaði 29 leiki sem byrjunarliðsmaður í deildinni af 30, en Jón Daði, Björn Daníel og Steinþór komu við sögu í 29 leikjum. Indriði spilaði 26 leiki. Það hafði ekki gerst síðan 13. júlí 2013 að enginn Íslendingur var í byrjunarliði Viking í deildinni, en það tímabil var Indriði sá eini frá Íslandi á mála hjá liðinu. Hann spilaði 29 leiki sumarið 2013 en missti af leik gegn Molde 13. júlí. Síðan þá hafa verið einn eða fleiri Íslendingar í byrjunarliði Viking í deildinni. Íslendingar voru í heildina í byrjunarliði Viking 48 leiki í röð þar til kom að leiknum í kvöld.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Elfsborg að kaupa Júlíus Magnússon Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun West Ham búið að bjóða Potter starfið Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Messi skrópaði í Hvíta húsið Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal AC Milan tók Ofurbikarinn fyrir framan nefið á nágrönnum sínum Hvíldu stórstjörnurnar sínar en brunuðu áfram í bikarnum Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Keane tekur við sigursælasta félagi Ungverjalands Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Hlín endursamdi við Kristianstad Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Gerrard að verða afi Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Sjá meira