Jón Daði og Steinþór með sjö stoðsendingar saman í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2015 17:58 Jón Daði Böðvarsson átti þátt i fimm mörkum í kvöld. Vísir/Anton
Íslensku leikmennirnir Jón Daði Böðvarsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson voru allt í öllu í sóknarleik Viking í kvöld þegar liðið komst áfram í 32 liða úrslit norsku bikarkeppninnar. Jón Daði lagði upp fjögur mörk auk þess að skora eitt í 9-0 útisigri á D-deildarliðinu Varegg frá Bergen og Steinþór Freyr Þorsteinsson átti síðan þrjár stoðsendingar. Íslensku leikmennirnir lögðu því upp sjö mörk saman og áttu þátt í öllu mörkunum nema einu. Mark Jóns Daða kom Viking-liðinu í 6-0 á 69. mínútu leiksins en þá var hann þegar búinn að gefa þrjár stoðsendingar. Nígeríumaðurinn Osita Henry Chikere skoraði fimm mörk í leiknum og í öllum mörkunum var það Íslendingur sem átti stoðsendinguna á hann. Jón Daði lagði upp tvö fyrstu mörk leiksins, á 27. og 31. mínútu og Steinþór Freyr lagði síðan upp þriðja markið á 36. mínútu. Þriðja stoðsending Jóns Daða kom síðan á 42. mínútu. Osita Henry Chikere skoraði þrennu í fyrri hálfleiknum allt eftir íslenskar stoðsendingar. Steinþór lagði upp fjórða mark Osita Henry Chikere á 53. mínútu og Jón Daði lagði síðan upp fimmta mark hans á 74. mínútu en Osita Henry Chikere kom þá Viking-liðinu í 7-0. Steinþór lagði síðan upp lokamarkið á 90. mínútu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sjá meira