Handbolti

Kári: Ekkert ýkja bjartsýnn með Karólínu

Ingvi Þór Sæmundsson í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi skrifar
Kári Garðarson, þjálfari Gróttu, í leiknum í kvöld.
Kári Garðarson, þjálfari Gróttu, í leiknum í kvöld. Vísir/Stefán
Kári Garðarson, þjálfari Gróttu, var hæstánægður með sigur Seltirninga á Stjörnunni fyrsta leik liðanna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld.

"Þetta var mjög sveiflukenndur leikur. Þær komust yfir í fyrri hálfleik en við nörtuðum í það forskot undir lok hálfleiksins," sagði Kári.

"Við sýndum svo mikinn karakter í seinni hálfleik, þéttum vörnina og Íris (Björk Símonardóttir) var frábær í markinu. Svo fórum við að skora framhjá Florentinu (Stanciu) og nýta færin okkar betur.

"Ég er gríðarlega stoltur af stelpunum, sérstaklega í ljósi þess hversu mörg skörð hafa verið höggvin í okkar lið," sagði Kári en Karólína Bæhrenz Lárudóttir fór meidd af velli snemma leiks. Þjálfarinn var ekkert alltof bjartsýnn á frekari þátttöku hennar í úrslitarimmunni.

"Það er erfitt að segja hver staðan á henni er núna en tognun aftan í læri er alltaf mjög erfið og maður er lengi að jafna sig á því. Ég er ekkert ýkja bjartsýnn með hana," sagði Kári en Laufey Ásta Guðmundsdóttir, fyrirliði Gróttu, er einnig meidd og spilaði ekkert í seinni hálfleik í kvöld. Þá hefur Anett Köbli ekki leikið með Seltirningum frá því í öðrum leiknum gegn ÍBV vegna meiðsla.

"Laufey var að pína sig áfram og það hlaut eitthvað að gefa sig í kálfanum og svo misstum við Evu Margréti (Kristinsdóttur) út af með rautt spjaldið," sagði Kári en hvað fannst honum um þann dóm?

"Mér fannst það mjög sérstakt en þessir dómarar (Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson) reka mikið út af. Maður hefur varla tölu á því hversu marga þeir eru búnir að reka út af og áður en maður veit eru þeir búnir að reka annan út af," sagði Kári en við hversu býst hann í leik tvö á fimmtudaginn?

"Ég býst við því sama og í kvöld. Sterkum vörnum, markvörslu og sóknarleik sem er ekkert alltaf gullfallegur," sagði þjálfarinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×