Fótbolti

Annar sigur Örebro í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Eiður Aron í leik með ÍBV, en hann spilar nú með Örebro.
Eiður Aron í leik með ÍBV, en hann spilar nú með Örebro. vísir/getty
Örebro vann sinn annan leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en Örebro vann 2-1 sigur á Gefle í dag.

Daniel Gustavsson skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu, en með sigrinum fer Örebro upp í fjórtánda sæti deildarinnar af sextán liðum.

Eiður Aron Sigurbjörnsson lék allan leikinn fyrir Örebro og krækti sér í gult spjald. Hjörtur Logi Valgarðsson kom inná sem varamaður í uppbótartíma.

Hjálmar Jónsson stóð vaktina í vörn Gautaborg sem vann 2-1 sigur á Halmstads í sömu deild. Jakob Ankersen skoraði bæði mörk Gautaborgar sem er á toppnum.

Hjálmar spilaði allan leikinn, en Gautaborg er eins og fyrr segir á toppnum með 25 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×