Birtu myndband af grimmilegum morðum ISIS Samúel Karl Ólason skrifar 23. júní 2015 13:30 Úr myndbandinu.
Íslamska ríkið birti í dag eitthvað grimmilegasta myndband samtakanna hingað til. Myndbandið, sem ber merki fjölmiðlunardeildar Íslamska ríkisins, sýnir aftökur manna í þremur hópum. Allt í allt eru mennirnir fleiri en tólf, en þeir eru sagðir vera njósnarar. Talið er að myndbandið sé tekið upp í Nineveh héraði í Sýrlandi. Sjá má mennina viðurkenna meinta glæpi sína gegn Íslamska ríkinu áður en þeir eru myrtir. Fyrstu fjórir mennirnir eru bundnir fastir inn í bíl, áður en vígamaður skýtur sprengju í bílinn. Annar hópur manna er læstur inn í búri sem látið er síga í sundlaug þar sem mennirnir drukkna. Í þriðju aftökunni er hópi manna raðað upp og þeir settir niður á hnén. Því næst vefur vígamaður sprengiþræði um hálsa þeirra allra og sprengir þá svo í loft upp. Fyrr í morgun báust fregnir af því að vígamenn Íslamska ríkisins hafi myrt tvo táninga fyrir að borða að degi til og rjúfa því Ramadan föstunni. Það á að hafa gerst í Mayadeen í Sýrlandi. AFP fréttaveitan segir frá því að lík drengjanna hafi verið hengd upp til sýnis og um háls þeirra hafi verið hengd skilti sem á stóð að þeir hafi rofið föstuna. Fregnir af misþyrmingum vígamanna ISIS eru algengar af því stóra svæði sem samtökin stjórna í Sýrlandi og Írak.
Mið-Austurlönd Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira