Basel klaufar gegn ísraelsku meisturunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. ágúst 2015 21:00 Vísir/Getty
Birkir Bjarnason og félagar hans í Basel fóru illa að ráði sínu þegar þeir gerðu 2-2 jafntefli við Maccabi Tel Aviv í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fór fram á St. Jakob-Park í Basel og voru heimamenn sterkari aðilinn. Þrátt fyrir það komst ísraelska liðið yfir með marki Erans Zehavi á 31. mínútu. Matías Delgado jafnaði metin í 1-1 úr vítaspyrnu á 39. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Basel-menn virtust vera búnir að tryggja sér sigurinn þegar Breel Embolo kom þeim yfir á 88. mínútu en Zehavi jafnaði metin á 6. mínútu í uppbótartíma með glæsilegum skalla. Svekkjandi úrslit fyrir Basel sem hefur verið fastagestur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar undanfarin ár. Birkir lék allan leikinn fyrir svissnesku meistarana í kvöld. Fjórir aðrir leikir fóru fram í umspilinu í kvöld.Á Celtic-Park unnu heimamenn 3-2 sigur á Kára Árnasyni og félögum í Malmö. Valencia vann góðan 3-1 sigur á Monaco á Mestalla. Rodrigo, Daniel Parejo og Sofiane Feghouli skoruðu mörk Spánverjanna sem eru í fínni stöðu fyrir seinni leikinn. Marlos tryggði Shakhtar 0-1 sigur á Rapid Vienna á útivelli. Það lítur því allt út fyrir að úkraínska liðið verði enn eitt árið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þá vann Dianmo Zagreb 1-2 sigur á Skenderbeu frá Albaníu á útivelli. Seinni leikirnir fara fram á þriðjudaginn í næstu viku.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Sjá meira