Þjálfari AGF bauð Elmar velkominn með blómum og kampavíni Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. september 2015 10:00 Theodór Elmar Bjarnason með blómin og kampavínið í dag. mynd/agf
Strákarnir okkar í karlalandsliðinu í fótbolta þurfa að fara að koma sér aftur niður á jörðina eftir áfangann stóra sem náðist á sunnudagskvöldið. Evrópudeildirnar hefjast á ný um helgina og þurfa flestir þeirra að mæta aftur til æfinga í dag. Theodór Elmar Bjarnason sneri aftur til Danmerkur í gær og mætti á æfingu hjá liði sínu AGF í morgun. Þar tók þjálfari liðsins, Morten Wieghorst, á móti okkar manni með kampavíni og blómum. Var verið að fagna EM-sætinu með miðjumanninum. Elmar hefur spilað frábærlega fyrir AGF á tímabilinu, en hann kom þangað frá Randers í sumar. Þessi annars öflugi miðjumaður spilar sem bakvörður með íslenska liðinu og var í byrjunarliðinu í fyrstu fjórum leikjum undankeppninnar. AGF situr í fimmta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir sjö leiki með tíu stig.Morten Wieghorst bød @ElmarBjarnason velkommen til dagens træning med blomster og champagne #AGF #Euro2016 #Iceland pic.twitter.com/WbdrW1qN4k— AGF (@AGFFodbold) September 8, 2015
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki Sjá meira