Arnór Ingvi með mark og stoðsendingu í sigri Norrköping Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2015 18:56 Arnór Ingvi og félagar eru í góðri stöðu til að vinna sænska meistaratitilinn. mynd/norrköping
Arnór Ingvi Traustason skoraði eitt marka Norrköping sem komst á topp sænsku úrvalsdeildarinnar með 4-2 sigri á Djurgården í kvöld. Arnór, sem var valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar 2013, lagði einnig upp þriðja mark Norrköping í kvöld en hann er kominn með sex mörk og sjö stoðsendingar á tímabilinu. Norrköping er með 54 stig á toppi sænsku deildarinnar, jafnmörg og AIK en betri markatölu. IFK Göteborg kemur þar á eftir með 53 stig en liðið á leik til góða gegn Elfsborg á morgun. Haukur Heiðar Hauksson lék allan leikinn fyrir AIK sem vann Sundsvall á útivelli með tveimur mörkum gegn engu. Þetta var níundi sigur AIK í röð en liðið hefur verið á rosalegri siglingu að undanförnu. Rúnar Már Sigurjónsson og Jón Guðni Fjóluson léku allan leikinn fyrir Sundsvall sem er í 12. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti. Kári Árnason var á sínum stað í vörn Malmö sem vann 4-3 sigur á Falkenbergs í miklum markaleik á Swedbank Stadion. Malmö er í 4. sæti deildarinnar, sjö stigum frá toppliði Norrköping þegar fimm umferðum er ólokið. Möguleikar Malmö á að verja sænska meistaratitilinn eru því heldur litlir. Ögmundur Kristinsson heldur áfram að gera það gott hjá Hammarby en hann hélt hreinu þegar Hammarby vann öruggan 3-0 sigur á Gefle á heimavelli. Þetta er í fjórða skiptið sem Ögmundur heldur hreinu í þeim 10 deildarleikjum sem hann hefur leikið með Hammarby. Birkir Már Sævarsson lék sömuleiðis allan leikinn fyrir Hammarby sem er í 10. sæti deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki Sjá meira