Árni þakkaði föstudeginum fyrir fyrsta markið í Noregi | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. október 2015 10:15 Árni Vilhjálmsson er kominn á blað. vísir/lsk.no
Árni Vilhjálmsson, framherji Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta, skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið þegar það lagði Haugasund að velli í 27. umferð deildarinnar í gær. Árni, sem skoraði 19 mörk í 41 leik síðustu tvö tímabili sín í Pepsi-deildinni, hefur glímt við meiðsli á þessu tímabili og þurft að spila mikið á kantinum hjá Rúnari Kristinssyni. Hann hefur aðeins byrjað fimm leiki fyrir Lilleström og komið inn á sex sinnum, en í gær tókst honum loksins að brjóta ísinn. „Þetta var gaman. Það eru fjórir mánuðir síðan ég byrjaði síðast leik. Það var gaman að koma inn í liðið, vinna leikinn og skora. Þetta var góður leikur fyrir mig og liðið,“ segir Árni á sæmilegri norsku í viðtali við LSK TV. Árni var vel staðsettur í teignum þegar Nígeríumaðurinn Freddy Friday skallaði boltann fyrir fætur Blikans sem þakkaði fyrir sig með að þruma honum í netið. „Það eina sem ég þurfti að gera var að skalla boltann í netið eftir þessa frábæru sendingu frá Fred,“ segir Árni, en Friday er sjálfur búinn að skora átta mörk í 23 leikjum fyrir Lilleström og er lykilmaður liðsins. Lilleström siglir lygnan sjó í norsku úrvalsdeildinni, en liðið er í áttunda sæti af 16 liðum þegar þrjár umferðir eru eftir á fyrstu leiktíð Rúnars Kristinssonar sem þjálfari þess.Hér má sjá markið og viðtalið við Árna Vilhjálmsson.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Sjá meira