Vafasöm vítaspyrna reyndist Ólafi dýrkeypt Eiríkur Stefán Ásgeirson skrifar 30. október 2015 19:01 Ólafur Kristjánsson á hliðarlínunni hjá Nordsjælland fyrr í þessum mánuði. Vísir/Getty
Ólafur Kristjánsson, þjálfari Nordsjælland, mátti sætta sig við svekkjandi tap gegn Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld, 2-1. Marcus Ingvartsen kom lærisveinum Ólafs yfir strax á elleftu mínútu og leit lengi vel út fyrir að það myndi reynast eina mark leiksins. En vendipunktur leiksins kom tíu mínútum fyrir leikslok. Andreas Maxsø fékk þá dæmda á sig afar vafasama vítaspyrnu fyrir að handleika knöttinn. Maxsø stóð eftir með blóðnasir enda virtist hann hafa fengið boltann í andlitið. Dómurinn stóð engu að síður og Nicki Bille skoraði jöfnunarmark Esbjerg úr vítaspyrnunni. Aðeins tveimur mínútum síðar skoraði svo Lasse Rise sigurmark Esbjerg eftir skyndisókn og þar við sat. Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamaður á 71. mínútu í leiknum en Adam Örn Arnarson sat allan leikinn á bekknum. Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í hópnum. Nordsjælland er í sjöunda sæti dönsku deildarinnar með nítján stig en þetta var þriðji tapleikur liðsins í síðustu fjórum leikjum sínum. Esbjerg er í tíunda sætinu með fjórtán stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Handbolti Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Handbolti Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Enski boltinn Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Fótbolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti Fleiri fréttir Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Fékk stóra sekt fyrir að faðma konu Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands Ancelotti vildi ekki tjá sig um Trent Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Sjá meira