Nýir búningar hjá PSG til minningar um fórnarlömbin í París Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2015 13:00 Mynd/Heimasíða PSG
Franska stórliðið Paris Saint Germain ætlar að minnast fórnarlamba hryðjuverkanna í París með sérstökum hætti þegar liðið spilar í Meistaradeildinni í þessari viku. Zlatan Ibrahimovic er að koma heim í þessari umferð því Paris Saint Germain mætir þá sænska liðinu Malmö í fimmtu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar og fer leikurinn fram í heimaborg Zlatans, Malmö. Leikmenn Paris Saint Germain munu spila í nýjum búningum sem voru hannaðir sérstaklega fyrir næstu tvo leiki, Meistaradeildarleikinn á móti Malmö annarsvegar og svo leikinn á móti Troyes í frönsku deildinni á laugardaginn. Paris Saint Germain fékk leyfi frá aðalstyrktaraðila sínum til að skipta út Emirates-auglýsingunni í þessum tveimur leikjum. Í stað Emirates-auglýsingarinnar mun vera áletrunin „Je Suis Paris" eða „Ég er París" vera áberandi framan á búningum PSG-liðsins. Það er fjallað um þetta framtak á heimasíðu franska liðsins. Leikurinn á móti Troyes verður fyrsti heimaleikur Paris Saint Germain síðan að voðaverkin voru framin föstudaginn 13. nóvember. Íslenski landsliðsmaðurinn Kári Árnason missir af leiknum á móti Paris Saint Germain þar sem hann fékk rautt spjald í síðasta Meistaradeildarleik Malmö og tekur Kári því út leikbann annað kvöld. Paris Saint Germain er í 2. sæti riðilsins, þremur stigum á eftir toppliði Real Madrid en fjórum stigum á undan Shakhtar Donetsk og Malmö FF sem eru í 3. og 4. sæti með þrjú stig. Parísar-liðið tryggir sér því sæti í sextán liða úrslitunum með sigri.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Enski boltinn Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Fótbolti Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Enski boltinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Handbolti Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið Fótbolti Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Fleiri fréttir Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Neymar ekki valinn í landsliðið en bæði Thiago og Endrick í hópnum Guðrún áfram í undanúrslitin með Hammarby Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Guardiola aflýsti æfingu liðsins Dómarinn festist á leikmannafundi Chelsea „Þeir eru líka að skíta á sig“ Bayern þarf að sækja um útivistarleyfi fyrir markmanninn Stjörnurnar með Madrídingum til Manchester Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Fyrsta þjálfarastarfið á Ítalíu Cecilía hélt hreinu í fjarveru Karólínu Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Ter Stegen fékk ekki að kjósa Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Sjá meira