Einn öflugasti foringi uppreisnarmanna í Sýrlandi fallinn Heimir Már Pétursson skrifar 26. desember 2015 19:16
Talsmaður einnar öflugustu samtaka uppreisnarmanna í Sýrlandi hefur staðfest að leiðtogi þeirra hafi fallið síðast liðinn föstudag. Rússneski flugherinn hefur birt upptökur af sprengiárásum sínum á olíutanka ISIS samtakanna í landinu. Jaysh al Islam uppreisnarhópurinn hefur ráðið ríkjum í úthverfum í austurhluta Damaskus, sem kallast Ghouta allt frá árinu 2013 þegar nokkrir uppreisnarhópar sameinuðust í einn. Rússneski flugherinn hefur haldið uppi sprengjuárásum á vígi uppreinsnarmanna að undanförnu en ekki er vitað hvort Zahran Alloush leiðtogi uppreisnarmanna féll í þeim árásum. En Rússneski flugherinn birti í dag myndir af loftárásum sínum sem þeir segja vera á olíutanka og flutningabíla Isis samtakanna. Talsmaður Jaysh al Islam segir í myndbandstilkynningu að hinn góði leiðtogi, Abu Abdullah Mohammad Zahran Bin Abdullah Alloush hafi fallið á austurvígstöðvunum í Ghouta og biður hans Guðs blessunar. Orð dugi ekki til að mæra hann og hann lofar sýrlensku þjóðinni að baráttan haldi óbreytt áfram með Alloush sem fyrirmynd. Dauði hins 44 ára gamla leiðtoga er sagt vera mikið áfall fyrir uppreisnarmenn en talsmaður samtaka þeirra segir hann hafa fallið í loftárás þar sem hann var að funda með öðrum uppreisnarleiðtogum. Þá telja sumir sérfræðingar í málum Sýrlands að upplausn í röðum uppreisnarmanna vegna loftárása Rússa geti tryggt Assad forseta Sýrlands yfirráð að nýju yfir svæðunum austur af höfuðborginni Damsakus. Rússar segjast einungis gera loftárásir á Isis en uppreisnarmenn gegn Assad forseta fullyrða að þeir ráðist skipulega gegn þeim.
Mið-Austurlönd Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira