Körfubolti

Dallas lagði meistarana að velli | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dirk Nowitzki skorar tvö af 18 stigum sínum gegn Golden State í nótt.
Dirk Nowitzki skorar tvö af 18 stigum sínum gegn Golden State í nótt. vísir/getty
Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Steph Curry lék ekki með Golden State Warriors sem tapaði fyrir Dallas Mavericks á útivelli, 114-91. Þetta var aðeins annað tap Golden State á tímabilinu en liðið hefur verið nær óstöðvandi í vetur.

J.J. Barea var stigahæstur í liði Dallas með 23 stig en sex leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða meira í leiknum í nótt. Ian Clark var atkvæðamestur í liði Golden State með 21 stig.

Kobe Bryant skoraði 15 stig og tók 11 fráköst þegar Los Angeles Lakers vann góðan sigur á Boston Celtics á útivelli, 104-112.

Jordan Clarkson var stigahæstur í liði Lakers með 24 stig en Isiah Thomas skoraði einnig 24 stig fyrir Boston.

Jimmy Butler var hetja Chicago Bulls sem vann nauman tveggja stiga sigur, 100-102, á Indiana Pacers. Framlengja þurfti leikinn en Butler skoraði sigurkörfu Chicago þegar 1,2 sekúndur voru til leiksloka.

Butler skoraði alls 28 stig í leiknum en Aaron Brooks var stigahæstur í liði Chicago með 29 stig. George Hill fór fyrir Indiana með 20 stig og sjö fráköst.

Úrslitin í nótt:

Dallas 114-91 Golden State

Boston 104-112 LA Lakers

Chicago 102-100 Indiana

Charlotte 117-122 LA Clippers

Orlando 100-93 Brooklyn

Toronto 94-91 Washington

Minnesota 94-80 Utah

San Antonio 112-79 Phoenix

Portland 110-103 Denver

Sacramento 105-110 Philadelphia

Butler skorar sigurkörfu Chicago gegn Indiana Nowitzki með huggulega troðslu Flottustu tilþrif næturinnar
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×