Besta ákvörðun sem ég hef tekið hingað til í lífinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2015 07:00 Jóhanna Gerða með liðsfélaga sínum til vinstri. Mynd/Aðsend
Jóhanna Gerða Gústafsdóttir var hætt að synda fyrir sex árum en tók sundhettuna af hillunni og stökk á tækifærið til að synda á skólastyrk í Flórída í Bandaríkjunum. Þessi 24 ára sundkona úr Ægi sér ekki eftir því í dag, ekki mikið frekar en forráðamenn sundliðs skólans enda hefur íslenska sundkonan reynst mikill happafengur fyrir sundlið skólans. Jóhanna Gerða vann allar greinarnar sínar á sínu síðasta deildarmóti í Bandaríkjunum auk þess að setja tvö mótsmet og fjögur skólamet, þar af tvö í einstaklingsgreinum. Florida International vann líka deildarmeistaratitilinn. „Ég var ótrúlega ánægð með persónulegan árangur minn og enn ánægðari með árangur liðsins. Að vera kosin sundmaður mótsins var æðislegt,“ segir Jóhanna Gerða. „Þetta tímabil í heild hefur verið ótrúlegt. Við náðum þeim frábæra árangri að klára tímabilið 10-0 og unnum meira að segja sterka nágrannaskólann okkar, University of Miami, með einu stigi og mikinn keppinaut okkar, Florida Gulf Coast University. Það voru held ég stærstu sigrarnir okkar í ár. Það gaf okkur einnig mikið sjálfstraust fyrir deildarmótið okkar,“ segir Jóhanna. Jóhanna hefur unnið 11 einstaklingsgreinar á mótum á háskólaferlinum.Besta tímabilið hjá henni „Persónulega þá er þetta besta tímabilið mitt ef litið er yfir allt árið. Á fyrri tímabilum hef ég oft rokkað upp og niður í tímum á mótunum yfir allt árið en í ár var ég betri og var að ná mínum bestu tímum án þess að vera hvíld og í keppnisgalla. Í ár hef ég samt náð að bæta mig í flestöllum greinunum mínum, þar sem ég náði sumum tímum sem ég var sjálf hissa yfir og er mjög spennt fyrir lokamótinu eftir nokkrar vikur,“ segir Jóhanna Gerða. Úrslitamót bandaríska háskólasundsins er hápunktur tímabilsins og þar verður Jóhanna Gerða meðal keppenda eins og fyrri árin sín í skólanum „Ég held að engin sundkona á undan mér hafi farið á úrslitamótið öll fjögur árin sín hér. Við vorum hissa og ánægð fyrsta árið mitt þegar ég náði inn, en eftir það hefur það alltaf verið markmið að ná inn á hverju ári, og á hverju ári einnig markmið að ná hærra en árið áður. Í ár er markmið mitt að ná enn þá hærra, en á sama tíma að hafa gaman af því, því þetta verður mitt seinasta,“ segir Jóhanna Gerða.Alla annar heimur úti En hver er munurinn á því að æfa sund á Íslandi og í Bandaríkjunum? „Líkamlega séð, þá er sundið að mestu leyti það sama. Hvað varðar liðsheild þá er þetta annar heimur hérna úti. Þegar ég æfði sund heima var allt einstaklingsmiðað. Þú æfir sund fyrir sjálfa þig og árangurinn endurspeglar þín eigin markmið og allt sem þú gerir tengist þér einni. Það er eitt mót heima sem er liðstengt, bikarmótið, en annað en það, þá eru það boðsundin, sem ég lifði alltaf fyrir þegar ég æfði heima. Hérna úti snýst allt um liðið. Allt sem við gerum er fyrir hag liðsins. Við endum aldrei neitt nema allar okkar hafi klárað og hver einasta keppni sem við syndum er allt samansettar stigakeppnir. Ofan á sundmótin okkar þá erum við einnig með keppnir innan skólans á milli allra íþróttaliðanna. Það er keppt um hvaða lið er best í einkunnum, hverjir eru bestir að hvetja hin liðin og hverjir inna mestu samfélagsþjónustuna af hendi. Þannig að í sjálfu sér er allt sem við gerum á hverjum einasta degi gert fyrir liðið,“ segir Jóhanna Gerða.Jóhanna Gerða var valin sundmaður mótsins í síðasta deildarmótinu á dögunum.Mynd/AðsendÁrið 2009 tók hún þá stóru ákvörðun að hætta að synda og æfði í kjölfarið ekki í tvö ár. „Ég hætti af því að ég var komin með mikinn leiða á sundinu. Ég get ekki og veit ekki sjálf af hverju, en ég var bara ekki með löngunina til þess að vakna og mæta lengur. Það helltist einhver leti yfir mig og ég hætti að bæta mig vegna þess að ég hætti að mæta jafn vel og vinna jafn vel á æfingum,“ segir Jóhanna Gerða en hún stökk til þegar henni bauðst skólastyrkur hjá Florida International. „Ég fékk þetta tækifæri til að koma út, byggt upp frá tímum sem ég hafði náð og ég ákvað að nýta mér það. Fyrstu mánuðirnir hérna úti voru þeir erfiðustu sem ég hef upplifað. Ég var í svo lélegu formi, en þökk sé mínum góða bakgrunni, þá komst ég í form og missti allt að 15 heilbrigð kíló á nokkrum mánuðum. Ég tel að þetta hafi verið besta ákvörðun sem ég hef tekið hingað til í lífinu. Bæði að hætta og taka mér frí, og að koma hingað út og byrja aftur. Ef ég hefði ekki tekið pásu, þá hefði ég kannski ekki viljann sem ég hef núna,“ segir Jóhanna Gerða.Af mikilli sundfjölskyldu Jóhanna Gerða er af mikilli sundfjölskyldu og yngri systir hennar er Eygló Ósk Gústafsdóttir. „Það er frábært að sjá hana Eygló standa sig svona vel og ég fylgist með henni á öllum mótum. Þegar ég sá hana labba út á bakkann á Ólympíuleikunum og gera sig tilbúna til að synda þá fylltist ég stolti og vissi að ég vildi vera þarna niðri með henni á næstu leikum,“ segir Jóhanna Gerða að lokum.
Sund Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Leik lokið: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjá meira