Þjálfari sem Blikar reyndu við tekinn við Kára Árna og félögum Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. janúar 2016 12:30 Allan Kuhn stýrir Aab í Meistaradeildinni 2008. vísir/getty
Kári Árnason og félagar í Malmö fengu í dag nýjan þjálfara þegar Daninn Allan Kuhn var ráðinn til starfa. Þetta kemur fram á heimasíðu Malmö. Malmö var þjálfaralaust eftir að Norðmaðurinn Åge Hareide sagði upp störfum í desember og tók við danska landsliðinu. Kuhn, sem er 47 ára gamall, hefur verið aðstoðarþjálfari Aab í Danmörku síðan 2011 en hann var einnig aðalþjálfari Midtjylland frá 2009-2011. Daninn tók í smá tíma við Aab sem bráðabirgðastjóri í október 2008 og stýrði liðinu til þriðja sætis í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Kuhn var á óskalista Breiðabliks fyrir síðasta tímabil en samningaviðræður gengu ekki upp eins og kom fram á Vísi. Arnar Grétarsson var svo ráðinn og skilaði Blikum í annað sætið á sínu fyrsta tímabili í Kópavoginum. Malmö er eitt allra stærsta liðið á Norðurlöndum en það varð Svíþjóðarmeistari 2010, 2013 og 2014. Það hefur í heildina unnið sænsku deildina 18 sinnum. Malmö komst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þessari leiktíð en hafnði í síðasta sæti síns riðils á eftir PSG, Real Madrid og Shakhtar Donetsk.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki Sjá meira