Umfjöllun og viðtöl: FH - Akureyri | Ágúst Elí í ham í mikilvægum sigri FH Anton Ingi Leifsson í Kaplakrika skrifar 19. febrúar 2016 21:00 Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður FH. vísir/stefán
FH vann mikilvægan sigur á Akureyri í 22. umferð Olís-deildar karla, en lokatölur urðu 26-21. Eftir sigurinn er FH í áttunda sætinu, sex stigum frá fallsæti og einungis einu stigi frá Akureyri sem er í sætinu fyrir ofan. Fyrri hálfleikurinn var kaflaskiptur. Akureyri byrjaði betur fyrsta stundarfjórðunginn, en svo fóru hvítklæddir heimamenn að spila betur. Þeir leiddu í hálfleik 13-11, en í síðari hálfleik voru heimamenn sterkari og unnu að lokum fimm marka sigur, 26-21. Gestirnir frá Akureyri byrjuðu leikinn afar vel. Þeir skoruðu fjögur mörk gegn einungis einu frá FH-ingum, en varnarleikur FH var ekki upp á marga fiska. FH komst þó inn í leikinn með hertari varnarleik og breyttu stöðunni úr 2-5 í 5-5 og leikurinn í járnum. Báðir markmenn liðana voru í ágætu stuði í fyrri hálfleik og vörðu nokkur dauðafæri, en Ágúst Elí Björgvinsson í marki FH var með 45% markvörslu í fyrri hálfleik og Tomas Olason í marki Akureyrar með 48% markvörslu. FH var að tapa boltanum á skringilegan hátt á köflum og voru ef til vill að flýta sér einum of mikið og það gerðist einnig fyrir Akureyri þegar líða fór á hálfleikinn. Akureyri var að spila fínan bolta sóknarlega og góða vörn, en um leið og FH fór að finna Ásbjörn Friðriksson í vinstri skyttunni fór munurinn að minnka. Hann skoraði nokkur mörk á stuttum kafla þar sem FH breytti stöðunni úr 7-9 í 11-9 sér í vil og komnir í kjörstöðu fyrir hálfleikinn. Þeir leiddu svo einmitt með tveimur mörkum í hálfleik, 13-11. Í síðari hálfleik héldu FH-ingar uppteknum hætti. Þeir skoruðu tvö fyrstu mörk síðari hálfleiks og munurinn orðinn fjögur mörk. Sóknarleikur Akureyrar var heldur betur stirður og Bergvin Þór Gíslason skoraði á 35. mínútu og minnkaði muinn í 16-14, en næsta mark kom ekki fyrr en á 43. mínútu þegar Bergvin skoraði aftur og minnkaði muninn þá í 18-15. Ágúst Elí Björgvinsson fór á kostum í mark FH og varði og varði, en sóknarleikur FH var ekki það öflugur að þeir stungu af. Þeir klúðru boltanum stundum á klaufalegan hátt og tóku óskynsamleg skot. Þegar stundarfjórðungur var eftir var munurinn einungis tvö mörk, 18-16. Ágúst Elí hélt áfram og Ásbjörn áfram að skora og FH sigldi sigrinum nokkuð örugglega heim, en Akureyri var tveimur mörkum undir, 20-18, þegar tíu mínútur voru eftir. Nær komust þeir ekki og FH skoraði sex gegn einungis þremur mörkum frá gestunum og lokatölur urðu 26-21, sigur heimamanna. Ásbjörn Friðriksson var frábær í liði FH. Hann skoraði átta mörk og keyrði FH-liðið áfram á ögurstöndu. Ágúst Elí Björgvinsson var einig gjörsamlega frábær og hann tók hvert dauðafærið á fætur öðru. Vörnin hélt vel, en liðið fékk einungis 21 mark á sig. Bergvin Þór Gíslason var markahæstur í liði gestanna með fimm mörk úr níu skotum, en næstur kom línumaðurinn Halldór Logi Árnason. Fleiri hefðu þurft að koma með meiri framlag í sóknarleik Akureyrar til þess að þeir hefðu farið með stig úr Kaplakrika í kvöld. FH er eftir sigurinn í áttunda sæti deildarinnar með 18 stig, stigi á eftir Akureyri sem er í sjöunda sætinu. Síðan kemur mjög þéttur pakki fyrir ofan þessi lið, en ÍR er nú sex stigum fyrir neðan FH, í fallsæti. Útlitið dökkt hjá ÍR.Halldór Jóhann: Viljinn var meiri hjá okkur en Akureyri „Þetta var virkilega sterkur sigur og ég er gríðarlega ánægður,” sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, í samtali við Vísi í leikslok. „Ég er ánægðastur með viljann og allt það. Leikurinn sem sjálfur var ekkert fallegur, allt of mikið af teknískum feilum og allt það, en viljinn var til staðar. Viljinn til þess að vinna og viljinn til að taka næsta bolta og halda spennustiginu þrátt fyrir að allt hafi ekki gengið upp.” „Einar Rafn er ekki með sinn besta leik í dag, en þá kemur bara næsti maður og spilar frábærlega. Ágúst Elí var frábær, Ásbjörn frábær, vörnin frábær, Jón Bjarni,” og hélt áfram að lofsama sína menn: „Við missum Ágúst Birgisson útaf með rautt spjald og þurftum aðeins að rótera, en það er viljinn fyrst og fremst í liðinu sem skóp þennan sigur. Viljinn var meiri hjá okkur, en Akureyri.” FH er nú komið sex stigum frá ÍR sem er í fallsæti, því níunda, og er þetta farið að líta mun betur út hjá FH, en það gerði á tímapunkti. „Við þurfum að taka einn leik í einu og við erum ekki að hugsa um neinn sem er eftir þrjár vikur eða eitthvað. Næsti leikur er eftir tvær vikur og við fögnum í kvöld og síðan byrjar undirbúningur fyrir leik gegn Val,” en FH á mjög erfitt leikjaprógramm framundan. „Við eigum Val, Hauka, Aftureldingu og Fram í næstu fjórum leikjum og alla á útivelli. Það verður gríðarlega erfitt prógram og í ljósi þess er þessi sigur mikilvægur fyrir okkur,” sagði Halldór Jóhann að lokum.Sverre: Hvert tap er bakslag „Þetta eru gífurleg vonbrigði miðað við hvernig við töpuðum. Við áttum ekki skilið meira en þetta í dag,” sagði Sverre Jakobsson, þjálfari Akureyrar, í samtali við Vísi stuttu eftir leik. „Við byrjuðum vel, en þú nærð ekki miklum árangri ef þú spilar bara góðar tíu mínútur og ég hreinlega veit ekki hvað gerist svo. Staðan í hálfleik er svo allt í lagi þrátt fyrir að við séum ekki ánægðir með spilamennskuna í heildina. Svo erum við bara miklir klaufar í síðari hálfleik.” „Við skjótum mjög illa á Ágúst og á ögurstöndum tókum við rangar ákvarðanir. Í rauninni vorum við aldrei líklegir í síðari hálfleik, nema kannski þarna rétt í byrjun síðari hálfleiks. Þá náum við smá baráttu og minnkuðum þetta í tvö mörk, en mér fannst við aldrei stiga skrefið til fulls sem þurfti í þessum leik.” „Hann var með einhverja 24 eða 25 bolta. Hann gerir sama hlutinn aftur og aftur og við reynum annað hvort að benda á það eða ræða það, en við höldum því áfram. Kannski minnkaði hjartað aðeins við hvert skot og það vantaði mikið upp á skotgæðin í dag.” Akureyri vann góðan sigur gegn ÍR í síðustu umferð og segir Sverre þetta bakslag. „Hvert tap er backslap, engin spurning. Við vorum í ákveðnu færi hérna í dag að koma okkur lengra úr þessum pakka og búa til smá bil við FH. Það var mikið um að spila og líka hjá þeim og þeir höfðu þetta extra umfram okkur í dag,” sagði Sverre hundfúll í leikslok.Ágúst Elí: Hlusta ekki á hann í hálfleik „Þetta var nauðsynlegur sigur og við stóðum undir pressunni,” sagði Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður FH, sem varði og varði í markinu. „Ef ég tala fyrir sjálfan mig þá var eins og ég væri sofandi fyrstu sex mörkin og síðan allt í einu kveiknaði á mér. Það gekk vel eftir það,” en aðspurður hvað Halldór, þjálfari, hafi sagt í hálfleik svaraði Ágúst: „Ég hlusta ekki á hann í hálfleik. Ég er sjálfur að reyna dreifa huganum; hugsa um hvað ég gerði um daginn og hvað ég ætli að gera á morgun og eitthvað.” „Ég var ánægðastur með agann. Ég zoon-aði svo oft út í markinu útaf flottum markvörslum, en aginn og varnarleikurinn var mjög góður,” sem segir sigurinn mikilvægan til að komast lengra frá ÍR: „Þeir eru búnir að vera nálægt rassgatinu á okkur mjög lengi og við náðum aðeins að slíta okkur frá þeim og erum stigi á eftir Akureyri.” Ágúst Elí var frábær í markinu, en var þetta hans besti leikur á tímabilinu? „Já og nei. Þetta var mikið af sjónvarpsvörslum, en ég var dálítið lengi í gang. Þetta var allaveganna á topp fimm,” sagði Ágúst í samtali við Vísi.
Olís-deild karla Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Uppgjörið: Haukar - FH 25-28 | FH með montréttinn eftir endurkomu í Hafnarfjarðarslagnum Handbolti Arsenal menn í miklu markastuði í Hollandi Fótbolti Hákon tryggði Lille jafntefli á Westfalenstadion Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Gæti fengið bann sem gildir um allan heim Fótbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti Fleiri fréttir „Ég var heitur og þegar maður er heitur á maður að negla á markið“ Botnliðin unnu bæði og eygja nú meiri von um að bjarga sér Uppgjörið: Haukar - FH 25-28 | FH með montréttinn eftir endurkomu í Hafnarfjarðarslagnum Dagur og félagar áfram á sigurbraut en Gummersbach tapaði Hundrað prósenta Sigvaldi í úrvalsliði Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt „Eins manns dauði er annars brauð“ „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Erlingur tekur aftur við Eyjaliðinu Hópurinn gegn Grikkjum: Nítján ára nýliði í markinu Svona var blaðamannafundur Snorra Einn sá allra besti á Íslandi samdi við sænsku meistarana Frábær leikur Andra dugði ekki til Myndasyrpa frá fögnuði Fram Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Myndasyrpa frá fögnuðu Hauka „Hvort við segjum núna titilinn eða tittlinginn, ég veit það ekki“ „Við vorum ógeðslega flottir í þessum tveimur leikjum“ „Þegar menn uppskera er það stórkostlegt“ „Ég er bara klökkur“ „Grimmd og gleði“ skilaði sannfærandi sigri Uppgjörið: Stjarnan - Fram 25-31 | Fram bikarmeistari Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ „Getum gengið stoltar frá borði“ Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Sjá meira