Aron fór á kostum í fyrsta leik með Tromsö Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. febrúar 2016 15:08 Aron Sigurðarson sló í gegn með Fjölni og byrjar vel hjá Tromsö. vísir/valli „
Aron fór á kostum í fyrsta leiknum sem leikmaður Tromsö,“ er fyrirsögn á norsku vefsíðunni iTromsö.no þar sem fjallað er um frammistöðu Arons Sigurðarson í æfingaleik með Tromsö á móti sænska liðinu Hammarby. Aron, sem spilaði sinn fyrsta landsleik á dögunum á móti Bandaríkjunum og skoraði, var keyptur til Tromsö í síðustu viku eftir að hafa heillað þjálfara og forráðamenn félagsins þegar hann fór út til æfinga hjá liðinu. Fjölnismaðurinn fyrrverandi þótti standa sig vel á vinstri kantinum þar sem hann lagði upp nokkur færi fyrir félaga sína. Íslendingaliðið Hammarby hafði þó betur í leiknum. „Við sáum hvað hann gat í vikunni sem hann æfði með okkur og því sóttumst við harðar á eftir honum en við gáfum út,“ segir Bård Flovik, þjálfari liðsins. Framherjinn Lehne Olsen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Tromsö en hann naut þess að spila við hlið Arons. „Það var mjög auðvelt að spila með honum,“ sagði Olsen eftir 2-1 tapið. „Við spiluðum vel saman og vonandi getum við bara orðið betri.“
Fótbolti á Norðurlöndum Tengdar fréttir Fjölnir selur Aron til Tromsö Fjölnir hefur selt Aron Sigurðarson til Tromsö í Noregi. 12. febrúar 2016 09:46 Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Fleiri fréttir Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana Sjá meira
Fjölnir selur Aron til Tromsö Fjölnir hefur selt Aron Sigurðarson til Tromsö í Noregi. 12. febrúar 2016 09:46