Verður fyrst spilað eftir nýju fótboltareglunum á Íslandi? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2016 07:30 Úr leik Val og KR í fyrrasumar. Vísir/Stefán
Gylfi Þór Orrrason, formaður dómaranefndar KSÍ, vonast til þess að nýjar fótboltareglurnar taki fyrst gildi á Íslandi en stór breyting var gerð á knattspyrnulögunum á dögunum. Á 130. ársfundi Alþjóðanefndar knattspyrnusambanda (IFAB), sem haldinn var í Wales 5. mars síðastliðinn samþykkti nefndin að heimila tilraunir með "vídeó-aðstoðardómara". Á fundinum var einnig gefið grænt ljós á umfangsmestu endurskoðun sem gerð hefur verið á knattspyrnulögunum í allri 130 ára sögu IFAB Aðalbreytingin var gerð á tólftu grein laganna sem snýst um hina svokölluðu þreföldu refsingu sem á við þegar leikmenn ræna andstæðing upplögðu marktækifæri innan teigs. Eftir miklar rökræður samþykkti nefndin samhljóða tillögu UEFA um nýtt orðalag. Leikmenn hafa alltaf fengið rautt spjald, víti á sig og leikbann fyrir slíkt brot en í nýju reglunum hefur sú refsing verið milduð. Dómari þarf nú bara að gefa gult spjald fyrir brotið ef það er ekki gróft, hinn brotlegi reyni ekki við boltann eða að leikmanni er ekki haldið, í hann togað eða honum hrint. Nýja reglan verður prófuð um allan heim næstu tvö árin en hún á að taka gildi 1. júní næstkomandi eða rétt fyrir Evrópumótið í Frakklandi. Gylfi Þór Orrrason vill hinsvegar að Ísland fái að taka þetta upp um leið og tímabilið byrjar. „Við gerum ráð fyrir því og höfum þegar leitað eftir heimild frá IFAB um að fá að nota þessar nýju reglur frá upphafi Íslandsmótsins. Við eigum von á jákvæðu svari en það skýrist um mánaðarmótin," sagði Gylfi í viðtali við Sindra Sverrisson í Morgunblaðinu í dag. Gylfi segir að ef þetta verði samþykkt þá munu menn fara í mikla kynningu á nýju knattspyrnulögunum hjá bæði félögunum og dómurum svo að allir séu með á nótunum þegar Borgunarbikarinn byrjar í lok apríl. KSÍ fer einnig fyrir nýju reglunar á heimasíðu sinni og má lesa um þær hér. Hvað varðar "vídeó-aðstoð" fyrir dómara leiksins, þá hefur IFAB samþykkt í grundvallaratriðum hvaða samskiptareglur skulu gilda í þeim tilraunum sem framundan eru og jafnframt ákveðið að hver tilraun skuli standa yfir í að lágmarki tvö ár til þess að tryggja að takast megi að svara sem flestum spurningum um hagræðið, óhagræðið og "verstu tilfellin" (worst case scenarios) sem "vídeó-dómgæslu" kunna að fylgja. Tilraunirnar munu hefjast í síðasta lagi við upphaf keppnistímabilsins 2017/18. Menn gera ekki ráð fyrir að með þessu megi ná 100% nákvæmni við ákvarðanatöku í hverju einstöku tilfelli, heldur miklu frekar að takast muni að koma í veg fyrir augljóslega rangar ákvarðanir í "lykil-atriðum-leiks" (game changing situations), svo sem við markaskorun, vítaspyrnuákvarðanir, bein rauð spjöld og þegar dómarar ruglast á leikmönnum. IFAB samþykkti þannig einungis eina tegund tilraunar sem felur í sér að "vídeó-aðstoðardómari", sem hefur aðgang að endursýningum á meðan á leiknum stendur, mun annað hvort skoða tiltekin atvik að beiðni dómarans sjálfs, eða grípa inn í leikinn með fyrirbyggjandi hætti þegar honum sýnist dómarinn vera að gera mistök.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira