Bandarískur vígamaður ISIS gafst upp í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 14. mars 2016 19:54
Maður sem segist vera frá Bandaríkjunum gafst upp fyrir Peshmergasveitum Kúrda nærri Sinjar í Írak í dag. Hann reyndi fyrst að gefast upp í gærkvöldi, en þegar hann nálgaðist víglínu Kúrda var skotið á hann. Talið var að hann ætlaði að sprengja sig í loft upp. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ekki staðfest að maðurinn sé þaðan.Samkvæmt AP fréttaveitunni sagðist hann upprunalega vera frá Palestínu. Hann heldur því einnig fram á myndbandi sem birt var í dag, þar sem hann hefur verið handsamaður. Kúrdar segja manninn hafa barist fyrir ISIS í Írak en hershöfðinginn Feisal Helkani segir manninn heita Mohammed Jamal Amin. Í fórum hans fundust þrír símar, þrjú mismunandi skilríki, þar á meðal bandarískt ökuskírteini, og peningar. Á ökuskírteininu stóð hins vegar Mohammed Jamal Khweis. AP ræddi við föður hans sem sagðist vera á leið á fund með embættismönnum í Bandaríkjunum. Hann brást reiður við spurningum um son sinn og sagði hann vera fullorðinn mann. Það væri ósanngjarnt að spyrja sig út í soninn. Yfirvöld í Bandaríkjunum vinna nú að því að staðfesta að maðurinn sé frá Bandaríkjunum. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 30 þúsund erlendir vígamenn starfi með ISIS, al-Qaeda og öðrum vígahópum í Sýrlandi. ISIS hafa tapað miklu svæði í Írak undanfarna mánuði og Kúrdar segja að sífellt fleiri vígamenn gefist upp.
Mið-Austurlönd Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira