Fyrirhugaðar breytingar Instagram fara öfugt ofan í fólk Jóhann Óli Eiðsson skrifar 28. mars 2016 18:35 Ríflega 400 milljón manns nota Instagram að staðaldri. vísir/getty
Notendur samskiptamiðilsins Instagram hafa margir hverjir mótmælt tilkynningu miðilsins að myndir muni ekki lengur birtast í sömu tímaröð og þær voru settar inn á vefinn. Með breytingunum er stefnt að því að notendaviðmótið verði svipað því og fólk þekkir af Facebook. Í tilkynningunni segir að markmiðið með breytingunum sé að notendur sjá þær myndir sem þá sannarlega langar að sjá. „Röðin á myndunum og myndböndunum sem þú sérð verður byggð á myndefninu og sambandi þínu við þann sem deilir myndinni. Við ætlum að taka okkur tíma til að ná þessu rétt. Upplifun ykkar af Instagram mun breytast á næstu mánuðum.“ Breytingin leggst ekki vel í alla og þá sér í lagi ekki eigendur smærri fyrirtækja sem óttast að þeir muni drukkna í efni frá risum á markaði. Tæplega 300.000 manns hafa skrifað undir áskorun til Instagram um að falla frá áformum sínum auk þess að notendur Twitter hafa tíst um efnið undir kassamerkinu #KeepInstagramChronologial. Margir hafa gripið til þess ráðs að biðja fólk um að merkja við get notification (Fá áminningu) í hvert skipti sem notandinn setur inn nýja mynd. Spurning er hvort samskiptavefurinn mun taka mark á kvörtununum eða láti þær sem vind um eyru þjóta.#keepinstagramchronological Tweets
Mest lesið Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör Viðskipti innlent Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Viðskipti innlent Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent Skamma og banna Play að blekkja neytendur Neytendur „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Viðskipti innlent Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendur Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent