Fótbolti

Kjartan Henry skoraði tvö og er orðinn næstmarkahæstur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Henry kom til Horsens frá KR sumarið 2014.
Kjartan Henry kom til Horsens frá KR sumarið 2014. vísir/daníel
Kjartan Henry Finnbogason skoraði bæði mörk Horsens í 2-0 sigri á Koge í dönsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Með sigrinum komst Horsens upp í 2. sæti deildarinnar en þrjú efstu liðin fara upp í úrvalsdeildina.

Kjartan Henry skoraði mörkin sín í upphafi beggja hálfleikjanna; hið fyrra á 2. mínútu og hið síðara á 48. mínútu.

Kjartan Henry er kominn með 11 mörk í deildinni á tímabilinu en aðeins Ástralinn Brent McGrath hjá Fredericia hefur skorað meira, eða 12 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×