Kári Kristján í eins leiks bann fyrir loftbyssuna | Myndir Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. apríl 2016 14:00 Kári Kristján verður ekki með. vísir/vilhelm
Kári Kristján Kristjánsson, línumaður ÍBV, verður ekki með Eyjaliðinu í þriðja leik liðsins gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta annað kvöld. Kári var í gær úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í öðrum leik liðanna í Eyjum. Hann hlaut útilokun með skýrslu „vegna grófrar óíþróttamannslegrar framkomu gagnvart andstæðingi“ eins og það er orðað í úrskurði aganefndar. Kári Kristján reiddist mjög út í Hákon Daða Styrmisson, leikmann Hauka og fyrrverandi samherja sinn hjá ÍBV, og miðaði að honum ímyndaðri byssu að Haukamanninum. Dómarar leiksins voru ekki lengi að reka Kára Kristján út af fyrir atvikið. Hákon Daði yfirgaf Eyjamenn fyrr á tímabilinu og gekk í raðir Hauka en hann hefur reynst sínum gömlu félögum gríðarlega erfiður í einvíginu. Hann skoraði tíu mörk í fyrsta leiknum og tólf mörk leik tvö í Eyjum. Að missa Kára út er mikið áfall fyrir ÍBV sem verður að vinna á Ásvöllum annað kvöld ef það ætlar ekki í sumarfrí. Hér má sjá myndir af atvikinu á Facebook-síðu Hauka.
Olís-deild karla Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti KR - Keflavík | Oddaleikur í Vesturbænum Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Fleiri fréttir Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Sjá meira