Fótbolti

Haukur Heiðar lék allan leikinn í sigri AIK

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Heiðar í baráttunni við Christian Eriksen í vináttulandsleik Íslands og Danmerkur.
Haukur Heiðar í baráttunni við Christian Eriksen í vináttulandsleik Íslands og Danmerkur. vísir/getty
Haukur Heiðar Hauksson var á sínum stað í byrjunarliði AIK sem vann 2-1 sigur á Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Þetta var annar sigur AIK á tímabilinu en liðið er í 9. sæti deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki.

Öll mörkin í leiknum komu í fyrri hálfleik. Alexander Isak kom AIK yfir á 14. mínútu en fimm mínútum síðar jafnaði Viktor Prodell metin fyrir Elfsborg. Það var svo Anton Salétros sem skoraði sigurmark AIK þegar mínúta var til hálfleiks.

Haukur hefur leikið alla fimm leiki AIK á tímabilinu, skorað eitt mark og átt eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×