Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þriðja árið í röð | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2016 21:00 Kévin Gameiro fagnar með félögum sínum í kvöld. Vísir/Getty
Sevilla varð í kvöld þriðja spænska félagið til að komast í úrslitaleik í Evrópukeppni á þessu tímabili þegar liðið sló úkraínska félagið Shakhtar Donetsk út úr undanúrslitum keppninnar. Sevilla vann seinni leikinn 3-1 en liðin gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum sem var á heimavelli Shakhtar Donetsk. Sevilla hefur unnið Evrópudeildina tvö undanfarin ár og fær nú tækifæri til að vinna þessa keppni þriðja árið í röð. Sevilla mætti portúgalska liðinu Benfica í úrslitaleiknum 2014 og úkraínska félaginu Dnipro Dnipropetrovsk í úrslitaleiknum í fyrra en að þessu sinni mun spænska liðið spila við enska liðið Liverpool. Kévin Gameiro skoraði tvö fyrstu mörk Sevilla í leiknum og kom liðinu tvisvar yfir en hann hefur skorað níu Evrópumörk á tímabilinu. Kévin Gameiro kom Sevilla í 1-0 strax á 9. mínútu eftir að hann slapp einn í gegn en Eduardo jafnaði fyrir Shakhtar Donetsk rétt fyrir hálfleik. Það var ekki jafn lengi því Gameiro kom Sevilla aftur yfir í upphafi síðari hálfleiks eftir laglega sókn og flotta sendingu frá Grzegorz Krychowiak. Grzegorz Krychowiak lagði líka upp þriðja markið en það skoraði Mariano á 59. mínútu. Eftir það var Sevilla með góð tök á leiknum og fagnaði flottum sigri og enn einu sæti í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.Gameiro skorar fyrir Sevilla Eduardo jafnar fyrir Shakhtar Donetsk Kévin Gameiro kemur Sevilla aftur yfir Mariano kemur Sevilla í 3-1 á móti Shakhtar
Evrópudeild UEFA Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Íslenski boltinn De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Sjá meira