Tvö skallamörk Matta Villa á síðustu tíu mínútunum tryggðu Rosenborg sigurinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2016 18:53 Matthías Vilhjálmsson fór illa með sína gömlu félaga. vísir/getty
Norsku meistararnir í Rosenborg unnu sigur á Start, 2-0, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en allir þrír Íslendingarnir í herbúðum meistaranna voru í byrjunarliðinu. Hólmar Örn stóð vaktina í vörninni, Guðmundur Þórarinsson byrjaði á miðjunni og þá fékk Matthías Vilhjálmsson að spila sem framherji en hann hefur leyst ýmsar stöður síðan hann gekk í raðir Rosenborg í fyrra. Ísfirðingurinn þakkaði traustið með því að skora bæði mörk Rosenborg gegn sínum gömlu félögum en í byrjunarliði Start var Blikinn Guðmundur Kristjánsson. Matthías kom meisturunum í 1-0 með skallamarki á 80. mínútu eftir fyrirgjöf frá bakverðinum Jonasi Svensson og hann innsiglaði svo sigurinn með öðru skallamarki eftir hornspyrnu á 88. mínútu. Rosenborg er á toppi deildarinnar eftir sigurinn í kvöld með 25 stig, fjórum stigum meira en Molde. Liðið er aðeins búið að tapa einum leik. Þrjú önnur Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld. Aron Sigurðarson og félagar í Tromsö gerðu markalaust jafntefli við Sogndal á útivelli, Álasund tapaði 1-0 fyrir Sarpsborg á útivelli og þá tapaði Viking einnig 1-0 fyrir Stabæk á útivelli. Adam Örn Arnarson var í byrjunarliði Álasunds en Aron Elís Þrándarson byrjaði á bekknum. Aron Sigurðarson var í byrjunarliði Tromsö og Björn Daníel Sverrisson var á sínum stað í byrjunarliði Viking Stavanger. Viking er efst þessara Íslendingaliða með 16 stig í áttunda sæti, Tromsö er í tólfta sæti með tíu stig og Álasund er aðeins með sjö stig í 14. sæti af 16 liðum.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira