Fyrsti leikur ársins á Laugardalsvellinum verður sýndur beint í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. maí 2016 14:00 Laugardalsvöllur. Vísir/Getty
Framarar spila fyrsta heimaleik sinn í Inkasso-deildinni í kvöld og þetta verður einnig fyrsti leikur ársins á Þjóðarleikvanginum í Laugardal. Fram tekur á móti Haukum klukkan 19.15 í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport. Það er alltaf viss tímamót þegar fyrsti leikur ársins er spilaður á Laugardalsvellinum og það verður fróðlegt að sjá hvernig völlurinn kemur undan vetrinum. Þetta verður langt tímabil því síðustu heimaleikir karlalandsliðsins verða tveir leikir með þriggja daga millibili í byrjun október. Reyndar gæti kvennalandsliðið einnig þurft að spila á vellinum í lok október en aðeins ef liðið þarf að fara í umspil um sæti á EM. Stelpurnar eru hinsvegar á góðri leið með að komast á EM án þess að þurfa að fara í umspil eins og í síðustu tvö skipti. Framliðið hefur ekki byrjað vel í Inkasso-deildinni og liðið á enn eftir að skora mark eftir tvær umferðir. Fyrstu tveir leikir Safamýrarliðsins fóru báðir fram á Akureyri og Framarar náðu stigi í seinni leiknum sem var á móti Þór. Haukarnir unnu hinsvegar frábæran 4-1 sigur á KA í síðustu umferð og fengu þá sín fyrstu stig eftir 3-2 tap í Grindavík í fyrstu umferðinni. Framarar vilja vinna fyrsta leikinn í b-deildinni fyrr en í fyrrasumar en hann kom þá ekki fyrr en í byrjun júní og þá í fimmta leik. Fram fengu ekki leyfi frá KSÍ til að spila leiki sína í Úlfarsárdal og á meðan framkvæmdum stendur mun Fram því leika á Laugardalsvellinum. Félagið mun hinsvegar spila alla heimaleiki félagsins Úlfarsárdal þegar framkvæmdir við svæði félagsins eru komnar á það stig að félagið geti uppfyllt þær kröfur sem gerðar eru til þess m.a. í leyfiskerfi KSÍ. Það eru fleiri leikir á Laugardalsvellinum á næstunni, fyrst tveir aðrir heimaleikir Framliðsins og svo A-landsleikir tvö kvöld í röð í júní. Karlalandsliðið mætir fyrst Liechtenstein í vináttulandsleik mánudagskvöldið 6. júní og kvöldið eftir spilar kvennalandsliðið þar á móti Makedóníu í undankeppni EM.
EM 2016 í Frakklandi Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira