Hallgrímur Jónason semur við nýliða í dönsku úrvalsdeildinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. júlí 2016 09:30 Hallgrímur Jónasson kominn í bláan búning Lyngby. mynd/heimasíða Lyngby
Hallgrímur Jónasson hefur fært sig um set í dönsku úrvalsdeildinni en fram kemur á heimasíðu Lyngby að Húsvíkingurinn er búinn að semja við nýliðana til tveggja ára. Hallgrímur kemur til Lyngby frá OB í Óðinsvéum þar sem hann spilaði í eitt tímabil og bar fyrirliðaband liðsins á tímabili. Þar áður spilaði Hallgrímur með SönderjyskE í þrjú ár og GAIS í Svíþjóð á undan því. „Við erum mjög ánægðir með að fá Hallgrím til Lyngby. Hann er alvöru varnarmaður sem er sterkur einn á einn og mikill vinnuhestur. Hann mun gera okkur betri á æfingum og í leikjum,“ segir David Nielsen, þjálfari liðsins, um Hallgrím á heimasíðu félagsins. Hallgrímur á að baki 144 leiki í dönsku úrvalsdeildinni og hefur því mikla reynslu sem ætti að hjálpa nýliðunum í endurkomu sinni í deild þeirra bestu. Lyngby vann B-deildina í Danmörku á síðasta tímabili. OB verður því að öllum líkindum Íslendingalaust á næsta tímabili því Ari Freyr Skúlason er einnig á leiðinni til Lokeren í Belgíu. Fyrsti leikur Hallgríms með Lyngby í deildinni gæti verið gegn ríkjandi meisturum FCK á laugardaginn en deildin hefst annað kvöld með viðureign Viborg og Nordsjælland.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira