Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Fjölnir - ÍA 4-0 | Öruggt hjá Fjölnismönnum Jóhann Óli Eiðsson á Extra-vellinum skrifar 7. ágúst 2016 22:00 Tobiast Salquist átti góðan leik í vörn Fjölnis. vísir/hanna
Skagamenn gerðu fýluferð í Grafarvoginn í kvöld þegar liðið tapaði 4-0 fyrir Fjölni í blíðskaparveðri. Heimamenn voru betri allan leikinn og verðskulduðu sigurinn.Hanna K.Andrésdóttir, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Extra-vellinum í kvöld og tók meðfylgjandi myndir. Gunnar Már Guðmundsson kom heimamönnum yfir eftir rúmlega korter og þegar nokkuð var liðið á fyrri hálfleikinn bætti Marcus Solberg við marki. Í upphafi síðari hálfleiksins skoraði Hans Viktor Guðmundsson svo gott mark og Arnar Már Guðjónsson skoraði svo sjálfsmark mínútu fyrir leikslok.Af hverju vann Fjölnir? Heimamenn voru einfaldlega betri á öllum sviðum knattspyrnunanr í dag ef frá eru taldar fyrstu fimm mínútur beggja hálfleika. Í upphafi fyrri hálfleiks meiddist fyrirliði gestanna, Ármann Smári Björnsson, og það sást á þeirra leik að þeir söknuðu hans talsvert enda munar um minna.Hverjir sköruðu fram úr? Hér ber fyrstan að nefna Gunnar Má Guðmundsson, herra Fjölni, sem skoraði eitt mark, lagði upp tvö önnur og hefði með smá heppni getað skorað fleiri. Trekk í trekk hoppaði hann manna hæst og skallaði að marki. Hægri vængur heimamanna var sprækur og miðjumennirnir Ólafur Páll og Igor hleyptu ekki miklu framhjá sér. Það sem fór í gegn átti sér síðan enga von gegn Tobias og Hans Viktori í vörninni en þeir áttu næsta óaðfinnanlegan leik. Hjá gestunum var ekki margt jákvætt að finna en þá helst var það framlag Þórðar Þorsteins Þórðarsonar í hægri bakverðinum. Hann skilaði sínu varnarlega og vann smá aukalega fram á við og til að bjarga félögum sínum.Hvað mátti betur fara? Stutta sagan hér er einfaldlega leikur Skagamanna. Eftir fimm sigurleiki í röð hafa þeir tapað tveimur leikjum. Þeir leikir hafa þó verið gegn toppliðum deildarinnar. Það gekk einfaldlega fátt upp hjá þeim í dag. Eftir að hafa verið tvö núll undir í hálfleik komu þeir sprækir inn í síðari hálfleikinn en þriðja mark Fjölnis drap allt hjá þeim. Eftir það voru þeir andlausir inn á vellinum og biðu í raun eftir lokaflautinu. Sóknarleikur liðsins var síðan, stóra hluta leiksins, nánast enginn. Líkt og áður hefur verið komið inn á saknaði liðið Ármanns Smára en Gunnar Veigar, sem tók stöðu hans í vörninni, hefur eflaust átt betri daga. Sömu sögu er hægt að segja um Arnór Snæ Guðmundsson, hinn miðvörðinn, en hann var tekinn út af í upphafi síðari hálfleiks og Darren Lough hent í miðvörðinn.Hvað gerist næst? Fjölnismenn smella sér með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar. Þar eru þeir með jafnmörg stig og Stjarnan og tvö stig eru í FH á toppnum. Bæði þau lið eiga leik til góða. Næsti leikur liðsins er einmitt gegn FH, sannkallaður toppslagur. Tapið færir ÍA í miðja töflu. Með sigrum í næstu leikjum hoppar liðið aftur upp í Evrópubaráttu en töp til viðbótar hendir Skagamönnum nær fallsvæðinu. Næsti leikur er gegn Víkingi Ó. en þar er ekki aðeins leikið upp á stigin þrjú heldur einnig montréttinn og heilsíðu í Skessuhorni. Það hlýtur því að vera leikur sem Skagamenn ætla að nýta sér til að rífa sig í gang á nýjan leik.Gunnar Már Guðmundsson skoraði fyrir Fjölni.vísir/vilhelmGunnar Már: Hefði getað skorað fimm með skalla „Mér sýndist hann vera á leiðinni frá mér. Hlýtur að vera mitt mark,“ sagði Gunnar Már Guðmundsson eftir stórsigur Fjölnis á ÍA í Grafarvogi. Lokatölur voru 4-0 en Gunnar skoraði eitt og lagði upp tvö önnur. Annað þeirra marka var sjálfsmark. Gunnar var síendurtekið einn á auðum sjó í teig Skagamanna og náði að skalla boltann að marki. „Ég hefði getað skorað fimm með skalla hefði ég verið heppinn. Eftir að Manni [Ármann Smári Björnsson] fór meiddur út af þá var þetta auðvelt í loftinu.“ Það gekk nánast allt upp hjá Fjölni í dag og ÍA átti ekki mikinn séns í leiknum. Sigurinn færir liðinu annað sæti deildarinnar, í það minnsta í bili. „Leikskipulagið gekk fullkomlega upp þó við hefðum dottið full neðarlega á köflum. En fjögur núll, við hljótum að sætta okkur við það. Markmiðið var að halda hreinu og reyna að gera það að rútínu að fá ekki mörk á okkur. Þá fylgir sóknarleikurinn í kjölfarið.“síðra fyrir vikið,“ sagði Ágúst að lokum.Gunnlaugur Jónsson þjálfari ÍAvísir/ernirGulli Jóns: Alger hörmung frá A til Ö „Það gekk ekkert upp í kvöld. Þetta var hörmung frá A til Ö,“ sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, í leikslok og bætti því við að hans drengir hafi fallið all svakalega á þessu prófi. Fyrirliði ÍA, Ármann Smári Björnsson, þurfti að haltra meiddur af leikvelli eftir tæplega korters leik. Þremur mínútum síðar fengu Skagamenn fyrsta markið á sig. „Mér fannst við byrja leikinn ágætlega og vera virkir. Ég veit ekki hvort brottfört Ármanns hafði svona mikil áhrif en hún á allavega ekki að hafa það. Við brotnuðum saman, allir saman, á öllum vígstöðvum.“ Líkt og áður hefur verið komið inn á var þetta annað tap Skagamanna í röð en í síðustu umferð tapaði liðið 3-1 gegn FH. „Við töpuðum gegn góðu liði í kvöld og mjög góðu liði í síðasta leik. Við verðum að þétta raðirnar enda töpuðum við bara á hugarfarinu hér í kvöld. Við höfum sýnt það gegn sterkum mótherjum að við getum unnið hvaða lið sem er.“ Gunnlaugur segir að hann hafi ekki áhyggjur ef menn þjappa sig saman. „Við verðum að gera það sem við gerum best. Að spila sem ein liðsheild og berjast sem einn maður. Sem betru fer höfum við tíma til að undirbúa næsta leik.“Ágúst á hliðarlínunni í kvöld.vísir/hannaGústi Gylfa: Undirbúnir fyrir öll skakkaföll „Við erum í 26 stigum og markmiðið er að halda í við toppliðin og taka þetta Evrópusæti,“ sagði kampakátur, en þó stóískur, Ágúst Gylfason í leiks lok. Þjálfarinn var ánægður með framlag sinna manna í fyrri hálfleik og taldi 2-0 nokkuð sanngjarnt í leikhléi. „Það fór smá um mann fyrstu mínúturnar í síðari hálfleiknum. Þeir voru mjög grimmir og í raun betri. En það er oft talað um þriðja markið og við skoruðum það í dag.“ Næsti leikur liðsins er nokkurs konar sex stiga leikur gegn FH en sem stendur er Fjölnir það lið sem næst kemst því að anda ofan í hálsmál Hafnfirðinganna. Það gæti þó breyst eftir leiki morgundagsins. „Við þurfum að sýna og sanna hvað við viljum í þessari deild. Við erum fullir sjálfstrausts. Sá leikur verður erfiður en það verður gaman að sjá hvernig hann fer.“ Nokkrar breytingar voru gerðar á framlínu liðsins fyrir leikinn. Ágúst sagði að það hefði ekki komið til af illu. „Við erum með frábæra leikmenn og undirbúnir fyrir öll skakkaföll. Það sýndi sig í dag að það er alveg sama hver kemur inn á, liðið verður ekkert
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hafþór Júlíus setti heimsmet í réttstöðulyftu Sport City að kaupa fyrrum leikmann sinn fyrir metfé Fótbolti Yfir þrjúþúsund manns á Meistaravöllum:„Albestu stuðningsmenn á Íslandi“ Fótbolti Landsliðsfólk fagnaði sigri í Kerlingarfjöllum Sport Sumardeildin hófst á stórsigri Fótbolti Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Körfubolti Halldór Árnason: „3-3 hefði verið nærri lagi“ Fótbolti Gerðu tvö jafntefli gegn C-deildarliðum á einum degi Fótbolti Uppgjörið: KR - Breiðablik 1-1 | Allt jafnt á nýja gervigrasinu Íslenski boltinn Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Breiðablik 1-1 | Allt jafnt á nýja gervigrasinu Spilaði með KV í gær en má spila með KR í dag Snúa aftur eftir 233 daga framkvæmdir: „Þetta er gamechanger“ Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ „Ótrúlegt að við skyldum ekki klára leikinn fyrr“ Uppgjör: FH - Fram 3-1 | FH-konur upp i annað sætið Keflvíkingar klúðruðu víti á nítugustu mínútu Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn „Hef mikla trú að það muni ganga upp núna“ Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi „Okkur fannst þetta ekkert öðruvísi en aðrir leikir” Andrea Rán semur við FH Uppgjör: Breiðablik-Þróttur 3-1 | Blikakonur unnu toppslaginn Uppgjör: Valur-FHL 2-1 | Fanndís hetja Valskvenna Uppgjör: Tindastóll-Þór/KA 2-0 | Tindastóll byrjar vel eftir EM-frí „Það verða færi og bæði lið þurfa að vera klók“ Yfirlýsing frá KSÍ: Þrengt að þjóðarleikvanginum Cosic kominn í KR-búninginn Uppbótartíminn: „Þetta tók níu sekúndur“ KR í markmannsleit eftir meiðsli „Við erum ekki á góðum stað“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Valsmenn tóku toppsætið af tíu Víkingum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Sjá meira
Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn