Jón Ragnar sækist eftir 3. sæti Atli Ísleifsson skrifar 17. ágúst 2016 14:30 Jón Ragnar Ríkharðsson segist eingöngu hafa unnið við líkamlega erfiðisvinnu í 35 ár.
Jón Ragnar Ríkharðsson, sjómaður og formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík þann 3. september næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá Jóni Ragnari segir að hann hafi eingöngu unnið við líkamlega erfiðisvinnu í 35 ár, mest á sjó, en hann hefur verið háseti á Ásbirni RE 50 síðastliðin átta ár. „Hann ólst upp í neðra Breiðholti í framkvæmdanefndarblokk og lifði við hefðbundin kjör íslenskrar verkamannastéttar. Styrkur Jóns Ragnars er að hann hefur alla tíð unnið erfiðisvinnu til sjós og lands - þekkir hvað það er að þurfa eingöngu að treysta á sjálfan sig. Árið 2009 byrjaði Jón Ragnar að vera virkur í grasrótarstarfi Sjálfstæðisflokksins og hefur gengt ýmsum trúnarastörfum fyrir flokkinn - m.a. verið formaður verkalýðsráðs síðan 2012 og sem slíkur setið í miðstjórn. Jón Ragnar mun leggja höfuðáherslu á málefni aldraðra því þau hafa setið á hakanum árum saman. Það er nauðsynlegt að eldri borgarar fái verðskuldaða viðurkenningu fyrir sín störf og eigi möguleika á að eiga áhyggjulaust ævikvöld. Það er algerlega óásættanlegt að fólki sé refsað fyrir að verða sjötugt - en það er því miður staðreynd. Allir mannréttindasáttmálar vesturlanda banna mismunun á grundvelli litarháttar, kynferðis, kynhneigðar og kynvitundar auk þess sem ekki má láta fólk gjalda þjóðernis, trúar eða stjórnmálaskoðana. Svo er það viðurkennt af stjórnvöldum að heilbrigt fólk á þessu ári skuli gjalda fyrir að hafa fæðst árið 1946 - þessu er mikilvægt að breyta viljum við kallast siðmenntuð þjóð. Jón Ragnar er maður sem veit hvað hann vill og mun berjast af alefli fyrir sínum hugsjónum,“ segir í tilkynningunni.
Kosningar 2016 Mest lesið Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Slegist með vopnum við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Sjá meira