Drápu mann sem hugði á hryðjuverkaárás í Kanada innan þriggja sólarhringa Atli Ísleifsson skrifar 11. ágúst 2016 22:45 Frá fréttamannafundi kanadísku lögreglunnar fyrr í dag. Vísir/AFP
Lögregla í Ontario í Kanada skaut í dag mann til bana sem grunaður er um að hafa ætlað sér að fremja hryðjuverkaárás í landinu innan þriggja sólarhringa. Lögregla í Kanada greindi frá þessu fyrr í dag og sagði bandarísku alríkislögregluna FBI hafa sent sér myndband þar sem maður sést búa sig undir gerð árásar.Í frétt BBC kemur fram að lögregla í Kanada hafi fljótt borið kennsl á manninn á myndbandinu, hinn 24 ára Aaron Driver, og haft uppi á honum í leigubíl í borginni Strathoy þar sem hann var drepinn af lögreglu. Talsmaður kanadísku lögreglunnar, Mike Cabana, segir að talið sé að Driver hafi ætlað sér að fremja sprengjuárás í Kanada. „Þetta var því augljóslega kapphlaup við tímann,“ sagði Cabana á fréttamannafundi nú síðdegis. Á myndbandinu sem FBI hafði komist yfir sést Driver þar sem hann segist ætla að sprengja sprengju í mikilli mannþröng, en á myndbandinu er hann búin að hylja andlit sitt. Fordæmir hann „vestræna óvini íslam“, vísar til nýlegra hryðjuverkaárása í París og Brussel og lýsir yfir stuðningi við ISIS. Cabana segir of snemmt að segja til um það hvernig FBI komst yfir myndband Driver.
Mið-Austurlönd Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira