Vígamenn ISIS sagðir hafa óhlýðnast Bagdadi Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2016 11:08 Frá Manbij. Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins eru sagðir hafa óhlýðnast skipunum Abu Bakr Al-Bagdadi, leiðtoga samtakanna. Hann hafði skipað verjendum Manbij að berjast til hins síðasta en þeir flúðu hins vegar. Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, hershöfðinginn Joseph Votel, segir vígamennina hafa flúið undan sókn SDF, sem studd eru af Bandaríkjunum. Vígamennirnir flúðu frá borginni á um 500 bílum og skýldu þeir sér á bakvið almenna borgara sem þeir neyddu til að ferðast með sér. Þeir flúðu til Jarablus, sem er á landamærum Tyrklands og Sýrlands, en Tyrkir hafa nú tekið bæinn úr höndum ISIS og gerðu þeir það án mikillar mótspyrnu. Votel segir þetta til marks um að ISIS sé mögulega ekki með jafn sterk tök á vígamönnum sínum og þeir vilja láta. Á blaðamannafundi var hann spurður út í bardaga á milli tveggja bandamanna Bandaríkjanna, Tyrklands og SDF. Votel sagði framlag beggja aðila vera mikilvægt baráttunni gegn ISIS og að bardagar þeirra á milli hjálpuðu ekki til. „Við viljum það ekki og við erum að vinna í því að binda endi á ástandið.“ Hann sagði að Bandaríkin myndu einungis styðja við aðgerðir gegn ISIS og ekki hjálpa aðilum að ná fram öðrum markmiðum.
Mið-Austurlönd Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Sjá meira