Vopnahlé í Sýrlandi á sunnudaginn Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2016 22:30 John Kerry og Sergei Lavrov í Genf. Vísir/AFP
John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Sergei Lavrov, utarnríkisráðherra Rússlands, segja að vopnahlé á milli uppreisnarmanna og stjórnarhers Sýrlands muni hefjast á miðnætti á sunnudagskvöld. Vopnahléið er sagt ná til ákveðinna svæða um allt Sýrland en Íslamska ríkið er undanskilið og sömuleiðis Jabat al-cham, áður Nusra front, deild al-Qaeda í Sýrlandi. Haldi vopnahléið í sjö daga munu Rússar og Bandaríkin sameiginlegar aðgerðir gegn ISIS og Nusra. Á sameiginlegum blaðamannafundi þeirra sagðist Kerry vonast til þess að vopnahléið gæti leitt til friðar í Sýrlandi. Hann sagði yfirvöld Bandaríkjanna hafa trú á því að Rússar gætu fengið stjórnarherinn til að stöðva átökin. Báðar fylkingar þurfa þó að „standa við skuldbindingar sínar,“ eins og hann orðaði það. Kerry sagði uppreisnarmenn tilbúna til að fylgja friðaráætluninni, ef stjórnvöld Sýrlands sýni að þeim sé alvara. Sömuleiðis sagði Lavrov að yfirvöld Rússlands hefðu tilkynnt stjórnvöldum Sýrlands um samkomulagið. Þeir væru tilbúnir til að standa við sitt. Samkomulagið felur einnig í sér að umsátrum víðsvegar um Sýrland verði létt og mannúðarsamtökum veittur aðgangur að þeim svæðum. Lavrov sagði ljóst að einhverjir aðilar í Sýrlandi myndu reyna að grafa undan samkomulaginu, en báðir tóku þeir fram að vopnahléið gæti leitt til sátta og lausnar á ástandinu í Sýrlandi.
Mið-Austurlönd Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira