Stór dagur í Pepsi-deildinni | Heil umferð spiluð og þrír leikir í beinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. september 2016 08:00 FH-ingar geta sama og klárað dæmið í dag. vísir/ernir
Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla í fótbolta í dag en aðeins eru fjórar umferðir eftir af tímabilinu. FH er svo gott sem orðið meistari og getur treyst stöðu sína á toppnum enn frekar í dag. FH-ingar heimsækja Fylkismenn í Árbæinn sem eru í harðri fallbaráttu með 17 stig í næst síðasta sæti, stigi á eftir ÍBV sem á erfiðan heimaleik gegn Stjörnunni. Stjarnan aftur á móti búin að tapa fjórum leikjum í röð. Með sigri fer FH úr 38 stigum í 41 en það á ekki möguleika á að vinna titilinn í dag vegna innbyrðis leiks Vals og Breiðabliks sem eru í 2. og 4. sæti með 31 stig líkt og Fjölnir sem mætir Þrótti á heimavelli. Valur, Fjölnir og Breiðablik hefðu öll þurft að tapa og FH að vinna í dag til þess að Hafnafjarðarliðið gæti fagnað áttunda Íslandsmeistaratitlinum sínum en augljóslega fær annað hvort, nú eða bæði liðin, stig í viðureign Vals og Blika. FH þarf því að bíða allavega til sunnudags með að fagna titlinum. Víkingaslagur verður í Ólafsvík en Reyk-Víkingar eru í áttunda sæti með 24 stig og Ólsarar í níunda sæti með 19 stig. Víkingar í Reykjavík eru að gera hvað þeir geta til að sogast niður í fallbaráttuna en sigur á ÍBV í 16. umferð heldur liðinu að öllum líkindum uppi. Umferð dagsins getur haft mikil áhrif á fallbaráttuna og baráttuna um Evrópusæti. Vakin er athygli á því að fimm leikjanna hefjast klukkan 17.00 en þrír þeirra verða í beinni útsendingu. Pepsi-mörkin eru svo á dagskrá klukkan 22.00.Leikir dagsins:17:00 Víkingur Ó. - Víkingur R., Ólafsvíkurvöllur 17:00 Fjölnir - Þróttur R., Extra-völlurinn 17.00 Fylkir - FH, Floridana-völlurinn Stöð 2 Sport 17:00 ÍA - KR, Norðurálsvöllurinn Stöð 2 Sport 17:00 ÍBV - Stjarnan, Hásteinsvöllur 20:00 Valur - Breiðablik, Valsvöllur Stöð 2 Sport22.00 Pepsi-mörkin
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ísland í hópi með Norður-Kóreu og Íran“ Sport Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Enski boltinn Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Íslenski boltinn Spence og van de Ven báðust afsökunar Fótbolti Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Handbolti Loksins þorði einhver í Kolbein sem stígur aftur inn í hringinn Sport Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Handbolti „Búnt á skenkinn, Halli Egils á vegginn“ Sport Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Sjá meira