Enski boltinn

Sjáðu mark Havertz og „aug­ljósa vítið“ sem ekki var dæmt

Sindri Sverrisson skrifar
Togað var í treyju Alexanders Isak innan teigs en það var ekki nóg til að hann fengi vítaspyrnu.
Togað var í treyju Alexanders Isak innan teigs en það var ekki nóg til að hann fengi vítaspyrnu. Getty

Þó að aðeins eitt mark hafi verið skorað þá var nóg um að vera í stórleik Liverpool og Arsenal á Anfield í dag. Allt það helsta úr leiknum má sjá á Vísi.

Kai Havertz skoraði sigurmarkið eftir korters leik en Liverpool fékk svo sannarlega færi til að jafna metin og Arsenal hefði einnig getað bætt við.

Liverpool-menn vildu líka nokkrum sinnum fá vítaspyrnu og höfðu mikið til síns máls þegar togað var í treyju Alexanders Isaks innan teigs í fyrri hálfleiknum.

„Mér fannst atvikið varðandi Alexander Isak augljóst víti. Það sáu allir hvernig peysutogin hjá þeim. Ég skil ekki. Ég held að þetta sé vegna þess að hann lét sig ekki falla. Það er synd að við þurfum að segja leikmönnum að dýfa sér. Þetta var svo augljóst og hefði verið frábært tækifæri fyrir okkur,“ sagði Andoni Iraola, stjóri Liverpool.

Atvikið umdeilda og allt það helsta úr leiknum má sjá hér að neðan.

Klippa: Liverpool - Arsenal 0-1

Tengdar fréttir

„Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“

„Mér finnst frábært að ná einhverju sem við höfum ekki gert í mörg ár,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir fyrsta sigurinn í deildarleik gegn Liverpool á Anfield í fjórtán ár. Hann var fullur stolts eftir 1-0 sigurinn í dag.

Eiður fann til með Liverpool

Eiður Smári Guðjohnsen sagði Liverpool vel hafa getað fengið vítaspyrnu í fyrri hálfleik gegn Arsenal í dag. Þeir Hjörvar Hafliðason fóru yfir málin í hálfleik í beinni útsendingu frá Anfield.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×