Fótbolti

Þjálfari Hákons grét eftir leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Davide Ancelotti var tilfinningasamur eftir sigurleik Lille um helgina.
Davide Ancelotti var tilfinningasamur eftir sigurleik Lille um helgina. AP/Jean-Francois Badias

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille unnu nágrannaslaginn á móti Lens í frönsku deildinni um helgina og það var mjög tilfinningarík stund fyrir þjálfara liðsins.

Þjálfari Lille er Davide Ancelotti, sonur hins eina sanna Carlosar, og hann sleppti af sér beislinu þegar Oliver Giroud skoraði sigurmarkið undir lokin. Ancelotti er þekktur fyrir ró og yfirvegun eins og faðir hans en þetta var stund til að missa sig í fögnuðinum.

Það vakti enn meiri athygli þegar Ancelotti mætti svo rauðeygður á blaðamannafundinn eftir leikinn og viðurkenndi að hafa grátið.

Spennuþrungnir dagar

„Þetta var leikur fullur af tilfinningum,“ útskýrði hinn 37 ára gamli þjálfari, sem hafði gengið í gegnum nokkra spennuþrungna daga. Það var fyrst og fremst vegna Meistaradeildarinnar, þar sem Lille er enn án stiga. Fyrir vikið fór fyrsta gagnrýnin einnig að birtast í frönskum fjölmiðlum á þjálfarann, sem, auk þess að bera frægt eftirnafn, þarf að takast á við hugsanlegar efasemdir sem tengjast fyrsta stjórastarfi hans í Evrópu, eftir stutta dvöl hjá Botafogo í Brasilíu. Á meðan hefur Lille þó haldið í við efstu lið frönsku deildarinnar.

Þetta var fyrsti grannaslagur Ancelottis með Lille og hann fór ef til vill örlítið spenntur inn í leikinn. Þess vegna fagnaði Ancelotti eins og harðasti stuðningsmaður þegar Giroud skoraði sigurmarkið á 86. mínútu.

Þetta er svolítið í genunum

Þegar flautað var til leiksloka í einhliða leik leyndi þjálfarinn ekki nokkrum tárum:

„Ég er bara svona,“ sagði hann við fjölmiðla eftir leikinn. „Þetta er svolítið í genunum, í okkar fjölskyldu grátum við mikið. Og þegar tilfinningarnar eru miklar endum við rauðeygð. Og það voru tilfinningar, fyrir sérstakan leik, fyrir alla. Leikmennirnir áttu sigurinn skilinn því þeir leggja hart að sér, þetta er góður hópur, og þess vegna var ég líka mjög tilfinningaríkur í lokin,“ sagði Ancelotti.

Lille er í öðru sæti deildarinnar á eftir PSG og leikur á miðvikudaginn á höttunum eftir fleiri gleðitárum í Meistaradeildinni, á útivelli gegn Bodö/Glimt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×