Kosningamál númer eitt Teitur Guðmundsson skrifar 26. september 2016 10:08 Nú í aðdraganda kosninga keppast flokkarnir við að lofa bót og betrun á heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Þeir hafa fengið býsna gott aðhald í honum Kára og þeim rúmlega 85 þúsund undirskriftum sem hann safnaði. Hann er líka duglegur að skammast í þeim og hvernig þeir ætli að hunskast til að standa í lappirnar hvað þetta málefni snertir. Eftir að hafa fylgst með umræðum undanfarið er erfitt að sjá fyrir sér hvað hver og einn vill gera nákvæmlega. Auðvelt er að lofa því að bæta kerfið, jafn auðvelt virðist vera að svíkja kosningaloforð eða tala sig útúr þeim þegar það hentar. Það er eiginlega alveg stórmerkilegt hvað stjórnmálamenn hafa lélegt minni um það hvað þeir sögðu og virðist alltaf þurfa að minna þá með hljóð eða myndbandsupptökum á það eftirá.Vissulega er verið að vinna að úrbótum stöðugt og má ætla að menn og konur líka séu að vissu leyti uppvið vegg í mörgum málum. Auðvitað kostar þessi þjónusta mjög mikinn pening. Pening sem þarf jafnvel að taka úr öðrum verkefnum sem getur verið sársaukafullt og erfitt. Því er auðvelt að skilja þá röksemdafærslu að forgangsmál hljóti að vera að stuðla að stöðugleika, greiða niður vexti af lánum ríkisins og stunda aðhald í ríkisrekstri. Þannig muni verða tækifæri til að gera betur en þegar er. Ég er í grunninn sammála þessu og líklega allir aðrir líka. Það er bara svo óstjórnlega sárt að hlusta á þetta vitandi að við höfum á nær öllum tímabilum kreppu, eða hagvaxtar eins og nú ríkir, klikkað á því að bæta í kerfið. Horfum afturfyrir kreppu og hrun og jafnvel lengra þá bar okkur ekki gæfa til þess heldur. Vandinn er ekki nýr af nálinni, þvert á móti. Stjórnmálamenn spila strútinn af einskærri fagmennsku.Stjórnvöld vita af mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu, erfiðleikum í tengslum við samkeppnishæfni launa og aðstöðu heilbrigðisstarfsfólks, öldrun þjóðarinnar og breyttu mynstri þjónustuþega á þeim vettvangi auk flóðbylgju lífsstílssjúkdóma og örorku sem mun gera kerfið miklu miklu dýrara en það er nú þegar. Það er eiginlega bara fyndið að hlusta á það þegar talað er um að bregðast við þessum atriðum og horfa á efndirnar í raun. Ég hef oft bent á þetta í samanburði við ferðaþjónustuna sem er mjög vaxandi atvinnugrein hér eins og allir þekkja. Fjöldi ferðamanna hefur ítrekað verið langt umfram spár og virðist ekki lát á. Þeir sem ferðast í gegnum Leifsstöð finna álagið, allar stoðstéttirnar sem þar starfa eru að kikna undan álagi og viðbrögðin eru svifasein og flumbrukennd. Mætti segja að það eigi að byggja landganginn að flugstöðinni þegar flugvélin er þegar lent, það gengur auðvitað engan veginn!Samlíkingin er að því leyti rétt að hvorugt kerfanna er í stakk búið að takast á við þau vandamál og verkefni sem voru og eru fyrirsjáanleg. Það sem meira er þá má segja að vandi heilbrigðisþjónustunnar sé fyrirsjáanlegri að því leyti að hann mun ekki hverfa líkt og getur mögulega gerst með ferðamennina ef þeim líst betur á annað land en Ísland einhverra hluta vegna. Við munum þurfa að hlúa að okkar eigin. Hvernig væri að vera núna á undan vandanum í stað þess að elta á sér skottið og stoppa í götin og ausa bátinn þegar hann er farinn að leka stíft.Það virðist vera einhver ákvörðunarfælni í þessum málaflokki, nema þegar kemur að kosningum. Þá allt í einu koma fram hin og þessi verkefni sem hafa verið í bígerð um lengri eða skemmri tíma. Kannski mætti vera meiri ákveðni á öðrum tímum kjörtímabilsins og spila svolitla sókn, þegar ég var í fótbolta á sínum tíma þá sagði þjálfarinn minn að sókn væri besta vörnin. Ég hallast að því að hann hafi haft rétt fyrir sér í meginatriðum, amk unnum við flesta okkar leiki þá.Ég ætla svo að gerast svo djarfur að segja að heilbrigðiskerfið snýst ekki bara um Landspítalann þó það sé alveg augljóslega stærsti útgjaldaliðurinn og án vafa ein mikilvægasta einstaka stofnunin í kerfinu. Eins og margoft hefur komið fram getur spítalinn bara sinnt sinni vinnu eins og best verður á kosið ef umhverfi hans, þá sérstaklega heilsugæslan, auk annarrar utanspítalaþjónustu líkt og öldrunar og hjúkrunarheimila virkar. Ég þekki áherslur heilbrigðisráðherra um heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað í kerfinu og að sjálfsögðu þann aðila sem fylgir eftir sjúklingi í kjölfar sjúkrahúsvistar. Ég vil meina að eitt af megin vandamálum í heilbrigðiskerfinu er hversu illa gengur að breyta um takt í heilsugæslunni. Hvar eru forsvarsmenn hennar í fréttum? Hvers vegna er ekki meira talað um þessa þætti? Af hverju tölum við bara um Landspítalann? Það er löngu sannað að grunnþjónustan í allri sinni fjölbreytni, ef hún virkar, er það sem heldur kerfinu gangandi, þar með talið sérfræðilæknaþjónusta á stofu. Það vantar pening, helling af pening svo vel verði við unað og helling af hugrekki til að setja hann í kerfið án þess að tafsa og halda áfram að moka flórinn með skeið. Það er allt of lítið gert og ríkisfjármálaáætlun er langt undir væntingum hvað þessi atriði snertir. Ég ætla að þakka Kára fyrir að tala tæpitungulaust en á sama tíma hvetja aðra til hins sama, heilbrigðisstarfsfólk sem sjúklinga og notendur þjónustunnar. Þá vil ég hvetja stjórnmálamenn, hvar í flokki sem er, að standa í lappirnar með loforð sín, það er eina ávísunin á endurkjör. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kosningar 2016 Skoðun Teitur Guðmundsson Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun