Innlent

Forseti Alþingis: Óvissan um þinglok er óviðunandi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Einar K Guðfinnsson, forseti Alþingis.
Einar K Guðfinnsson, forseti Alþingis.
 Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, segir þá óvissu sem nú sé uppi varðandi þinglok óviðunandi. Hann segir ríkisstjórnina verða að komast að niðurstöðu, en einungis tuttugu og fjórir dagar eru til kosninga.

„Forseti hefur átt samtöl við ríkisstjórnarflokkana, gert þeim grein fyrir stöðunni, og vill ítreka þá skoðun sína að forseti telur mjög brýnt að fundur eigi sér stað hjá forystumönnum stjórnarflokkanna til þess að komast að einhverri niðurstöðu í þessu máli. Forseti telur að sú óvissa sem núna er uppi sé óviðunandi,” sagði Einar K. á þingfundi í morgun.

Stjórnarandstaðan hefur ítrekað kallað eftir svörum um þinglok, og gagnrýndi hún svarleysið harðlega. „Mér finnst það leitt ef meirihlutinn ætlar að bregðast því trausti sem við höfum lagt á hann að ljúka hérna málum þannig að það sé einhver bragur af og að stefna þinginu í þetta óefni,” sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, tók í svipaðan streng og sakaði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra um svik.

„Við erum löngu komin fram yfir þann tíma sem ætlunin var að ljúka á. Loforð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks, um að stytta þetta kjörtímabil um eitt þing er þegar svikið. Við hljótum að spyrja virðulegan forseta hvort það hafi eitthvað gerst í millitíðinni sem okkur er ekki kunnugt um. Hefur eitthvað komið fram af hálfu stjórnarmeirihlutans hver sé fyrirætlun hans með þessu fundarhaldi eða hvað það er sem hann vill?” sagði Helgi Hjörvar .Forseti Alþingis svaraði spurningu hans neitandi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×