Ingvar Þór Kale ver mark Skagamanna Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. janúar 2017 10:20 Ingvar Þór Kale spilar á Skaganum í sumar. vísir/anton brink
Markvörðurinn Ingvar Þór Kale er búinn að semja við ÍA í Pepsi-deild karla og spilar með þeim í sumar, samkvæmt heimildum Vísis. Ingvar var án liðs eftir að samningur hans við Val rann út eftir tímabilið. Hann missti sæti sitt í Valsliðinu vegna meiðsla snemma síðasta sumar til Antons Ara Einarssonar og hætti hjá Hlíðarendafélaginu í ágúst. Skagamenn þurftu á markverði að halda eftir að Árni Snær Ólafsson sleit krossband síðasta haust en Árni hefur varið mark liðsins undanfarin ár og fengið mikið lof fyrir sína frammistöðu. Meiðslin mikið áfall fyrir hann. Ingvar Kale er þrautreyndur markvörður sem verður 34 ára gamall á árinu. Hann er uppalinn í Víkingi en spilaði síðustu tvö ár með Val og varð bikarmeistari bæði árin. Hann spilaði þó ekki bikarúrslitaleikinn síðasta sumar. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með Breiðabliki þegar hann spilaði þar frá 2009-2012 en áður hjálpaði hann uppeldisfélagi sínu Víkingi tvisvar sinnum að komast upp í deild þeirra bestu og halda því þar. Skagamenn höfnuðu í áttunda sæti í fyrra eftir að vera nokkuð óvænt í Evrópubaráttu langt inn í mótið en liðið fékk á sig 33 mörk í 22 leikjum, flest mörk allra liða sem fengu 30 stig eða fleiri.Uppfært 12:02:Knattspyrnudeild ÍA er búin að staðfesta komu Ingvars sem skrifaði undir eins árs samning við Skagamenn. Hann segir í fréttatilkynningu félagsins: „ÍA er frábær klúbbur með mikla hefð og merka sögu. Ég hafði mikinn áhuga um leið og það var haft samband við mig og ég tel mig hafa mikið fram að færa til að hjálpa liðinu í baráttunni næsta sumar. Síðasta sumar gekk ekki jafnvel hjá mér eins og árin þar á undan og ég er orðinn hungraður í árangur aftur.”
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira