Skór af sömu tegund og í sama lit og Birna var í fundust við Hafnarfjarðarhöfn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. janúar 2017 02:33 Lögregla og björgunarsvetiri ætla að leita af sér allan grun í Hafnarfjarðarhöfn þar sem skórinn fannst. Vísir/Vilhelm
Dr. Martens-skór sem fundust við Hafnarfjarðarhöfn kvöld svipar mjög til þeirra sem Birna Brjánsdóttir klæddist þegar hún hvarf snemma morguns á laugardag. Ekki er þó hægt að fullyrða að skórnir séu af Birnu.Hafnfirðingur fann skóna við Hafnarfjarðarhöfn um klukkan ellefu í kvöld og gerði lögreglu viðvart. Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir fundinn í samtali við Vísi. Skórnir eru svartir, líkt og þeir sem Birna klæddist, og leitað verði aðstoðar ættingja til að komast að því hvort um skó Birnu sé að ræða. Að neðan má sjá viðtal við Ágúst sem tekið var á fjórða tímanum í kvöld. Snjór var undir skónum sem fundust en þrír sólarhringar tæpir eru liðnir síðan Birna hvarf. Frá leitinni í Hafnarfjarðarhöfn í kvöld.Vísir/VilhelmUmfangsmikil lögregluaðgerð er nú í Hafnarfjarðarhöfn þar sem kafarar úr sérsveit lögreglu eru mættir og siglt er um höfnina í gúmmíbát. Þá er sporleitarhundurinn Perla á svæðinu. Lokað hefur verið fyrir almenna umferð um höfnina.Að neðan má sjá myndband frá leitaraðgerðum lögreglu í höfninni.Ágúst segir ekki þorandi annað en að leita, leita af sér allan grun. Skórinn sé vísbending sem lögreglan ætli að fylgja eftir. Aðgerðum verði framhaldið í Hafnarfjarðarhöfn þangað til frekari vísbendingar finnist.Lögreglan notar tvo dróna við leitina að Birnu. Að neðan má sjá myndband frá þvi þegar verið var að gera bátinn tilbúin fyrir leitina í Hafnarfjarðarhöfn.Saknað í þrjá sólarhringa Birna hefur nú verið týnd í tæpa þrjá sólarhringa. Hún yfirgaf skemmtistaðinn Húrra klukkan fimm að morgni laugardags og sást síðast á eftirlitsmyndavél við Laugaveg 31 klukkan 05:25. iPhone sími Birnu tengdist símamastrinu á gömlu slökkvistöðinni í Hafnarfirði klukkan 05:50 en þá var slökkt á honum. Fram kom á blaðamannafundi lögreglunnar í dag að slökkt hefði verið á honum. Hann varð ekki rafmagnslaus. Þá birti lögregla myndband með myndefni úr eftirlitsmyndavélum í miðborg Reykjavíkur þar sem sjá mátti Birnu ganga Austurstrætið, upp Bankastræti og svo Laugaveg.Myndbandið má sjá að neðan.Frekar í bíl á HverfisgötuTengsl síma Birnu Brjánsdóttur við símamöstrin í miðbænum benda til þess að hún hafi ekki farið inn í bíl á Laugavegi heldur frekar á Hverfisgötu. Mikil leit stendur yfir að rauðum Kia Rio fólksbíl en það hvernig síminn tengist símamöstrum miðbæjarins bendir til þess að sími Birnu hafi ferðast í öfuga átt við bílinn. Lögreglan hefur birt myndband af Birnu þar sem hún gengur upp Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur. Í lok myndbandsins, þegar Birna er stödd við Klapparstíg, er sími hennar tengdur við símamastur í húsnæði Máls og menningar við Laugaveg. Skömmu síðar tengist sími Birnu símamastri við Lindargötu, sem getur bent til þess að Birna beygi niður af Laugavegi og á Hverfisgötu. Ekki löngu síðar tengist síminn símamastri á gamla Landsbankahúsinu á horni Barónsstígs og Laugavegar. Þremur til fjórum mínútum síðar tengist sími Birnu símamastri við Listaháskólann á horni Sæbrautar og Laugarnesvegar, en talið er fullvíst að þegar þangað sé komið, frá því að síminn tengist við Barónsstíg, sé sími Birnu kominn í ökutæki á ferð. Rúmum tuttugu mínútum síðar er slökkt á símanum handvirkt þegar hann tengist símamastri á gömlu slökkvistöðinni við Flatahraun í Hafnarfirði.Mikilvægar upplýsingar um hvarf Birnu er að finna í fjarskiptagögnum.Minna eftirlit á Hverfisgötu Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er mun minna myndavélaeftirlit á Hverfisgötu en á Laugavegi. Samkvæmt ofangreindum upplýsingum kemur sterklega til greina, að mati lögreglu, að myndavél við Laugaveg 31, sem kviknar á við hreyfingu, hafi ekki numið hæga hreyfingu Birnu og hún gengið niður eftir Vatnsstíg. Rauði bíllinn sem lögreglan leitar nú, í þeirri von að ökumaður bílsins reynist mikilvægt vitni, sést í myndavél keyra í öfuga átt við Birnu. Akstur hans kveikir á myndavél við Laugaveg 31 hjá Kirkjuhúsinu og verkfæraverslunina Brynju. Fimmtán til sextán sekúndum síðar sést sami bíll á næsta horni aka yfir gatnamót Laugavegar og Klapparstígs. Myndavélar lögreglu missa sjónar á bílnum við Ingólfsstræti en tímaramminn og tenging símans gerir það að verkum að lögreglu finnst afar ólíklegt að Birna hafi farið upp í bílinn. Þó er það ekki útilokað.Birna Brjánsdóttir.Ekki að velja þetta sjálfSigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu, sagðist í viðtali við fréttamenn í dag hafa orðið fyrir vonbrigðum að ekki hafi verið leitað að Birnu síðastliðna nótt.„Það er svolítið skýrt að hún er í hættu. Hún er ekki að velja þetta sjálf að hverfa. Af því þetta er þannig stelpa,“ sagði Sigurlaug. „Hún er ekki á flótta undan einhverju og hefur ekki verið í efnum. Það er einhvers staðar verið að halda henni. Hún er ekki sjálfviljug einhvers staðar.“Viðtalið má sjá hér að neðan. Uppfært klukkan 02:55Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni, staðfestir að svart skópar hafi fundist við Hafnarfjarðarhöfn af tegundinni Dr. Martens, ekki aðeins einn skór. Að neðan má sjá myndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, tók við leitina í Hafnarfjarðarhöfn í kvöld.Vilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm GunnarssonVilhelm Gunnarsson
Birna Brjánsdóttir Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira