Valsmenn í undanúrslit Reykjavíkurmótsins | Fjölnismenn með fullt hús stiga Kristinn Páll Teitsson skrifar 28. janúar 2017 19:32 Strákarnir hans Óla Jóh voru beittir í kvöld og unnu öruggan sigur. vísir/anton
Valsmenn unnu öruggan 4-0 sigur á Leikni Reykjavík í lokaleik B-riðilsins í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í Egilshöllinni í dag en með sigrinum komust Valsmenn í undanúrslit Reykjavíkurmótsins. Það var ljóst að þetta var úrslitaleikur upp á hvort liðið myndi fylgja Fjölnismönnum í úrslitin en bæði höfðu þau unnið leik sinn gegn Þrótt en tapað gegn Fjölni. Valsmenn komust yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks með marki frá Kristni Inga Halldórssyni en hann bætti við öðru marki tíu mínútum fyrir leikslok. Aron Gauti Magnússon og Cristian Andres Catano bættu við sitt hvoru markinu á lokamínútunum er sigurinn var kominn í höfn en með sigrinum ná Valsmenn öðru sæti B-riðilsins. Í fyrri leik dagsins gulltryggðu Fjölnismenn efsta sæti riðilsins með 4-0 sigri á Þrótturum en Fjölnismenn unnu alla leiki sína í riðlinum. Ægir Jarl Jónasson kom Fjölni yfir á 19. mínútu en Þórir Guðjónsson bætti við forskotið af vítapunktinum á 49. mínútu. Birnir Snær Ingason gerði út um leikinn með þriðja marki Fjölnis á 62. mínútu en Ægir Jarl bætti við öðru marki sínu undir lok venjulegs leiktíma. Fjölnismenn tóku því efsta sæti B-riðilsins og Valsmenn annað sætið en það kemur í ljós á föstudaginn næsta hvaða liðum þau mæta í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira