KR-ingar enn án sigurs á árinu 2017 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2017 11:30 Frá leik KR. Vísir/Vilhelm
KR-liðið hefur aðeins fengið eitt stig út úr fyrstu tveimur leikjum sínum í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta. KR tapaði síðasta 2-1 á móti 1. deildarliði Fylkis en hafði áður gert jafntefli við Víkinga. Hákon Ingi Jónsson skoraði bæði mörk Fylkismanna með þriggja mínútna millibili í fyrri hálfleik en Guðmundur Andri Tryggvason minnkaði muninn á lokamínútu fyrri hálfleiksins. KR-ingar tefldu fram sterku liði í leiknum en þar á meðal voru Danirnir Morten Beck, Michael Præst og Kennie Knak Chopart, fyrirliðinn Indriði Sigurðsson, Óskar Örn Hauksson, Finnur Orri Margeirsson og nýju mennirnir Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Garðar Jóhannsson. KR-liðið var reyndar ótrúlega nálægt sigri í fyrsta leiknum en liðið var yfir í tæpar 80 mínútur frá því að Aron Bjarki Jósepsson kom liðinu í 1-0 á 14. mínútu. Ívar Örn Jónsson tryggði Víkingi jafntefli með marki á þriðju mínútu í uppbótartíma. Framarar byrja árið aftur á móti vel en þeir eru með fullt hús eftir tvo leiki í þessum A-riðli. Fram vann fyrsta Fylki 2-1 og fylgdi því síðan eftir með 2-1 sigri á ÍR-ingum. Lið KR og Fram mætast einmitt í Egilshöllinni á föstudaginn kemur en KR verður að vinna þann leik ætli Vesturbæingar að komast upp úr riðlinum.Stig liða í A-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta: 1. Fram 6 stig (+2 í markatölu) 2. Víkingur R. 4 stig (+1) 3. Fylkir 4 stig (0) 4. KR 1 stig (-1) 5. ÍR 1 stig (-2)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira