Leitin að Birnu: Svæði útilokuð sem eru ófær Kia Rio Snærós Sindradóttir skrifar 21. janúar 2017 07:00 Ein umfangsmesta leit björgunarsveitanna, leitin að Birnu Brjánsdóttur, fer fram um helgina. Fréttablaðið
Ein umfangsmesta leit björgunarsveitanna, leitin að Birnu Brjánsdóttur, fer fram um helgina. Ráðist var í skipulag og útreikninga í gær til að útiloka ákveðin svæði frá leitinni. Fjórar klukkustundir eru óútskýrðar í ferðum rauða Kia Rio bílsins. Lögreglan og leitarfólk hefur keyrt um slóða og stíga í grennd við höfuðborgarsvæðið á Kia Rio bifreið til að fá úr því skorið hvar er fært fyrir slíka bifreið. Vegurinn á Strandarheiði upp að Keili, þar sem björgunarsveitir stóðu fyrir mikilli leit síðustu þrjá daga, er malarvegur og frekar stórgrýttur. Hann reynist erfiður á köflum fyrir almenna fólksbíla. Margar ábendingar hafa borist lögreglu um mannaferðir á svæðinu um helgina. Lögreglan hefur lagt alla áherslu á að kortleggja ferðir rauða bílsins sem Birna Brjánsdóttir var að öllum líkindum farþegi í, að morgni laugardagsins 14. janúar. Fram hefur komið að um fjórir tímar eru óútskýrðir af ferðalögum bílsins eftir að Birna Brjánsdóttir hvarf. Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að vegna þessa rúma tímaramma komi stórt svæði til greina til leitar. „Eins og staðan er núna þá erum við að tala um stóran hluta af suðvesturhorninu sem við getum ekki útilokað. Við erum að tala um Borgarnes, Selfoss og allt Reykjanesið. Svo má bara draga hring á milli.“Ásgeir segir að þegar svæðið sé afmarkað sé jafnframt tekið tillit til þess kílómetrafjölda sem ekinn var á tímabilinu sem skipverjarnir á Polar Nanoq höfðu bílinn til umráða. Bíllinn er bílaleigubíll og því er grannt fylgst með akstri bílsins hjá hverjum leigutaka fyrir sig. Þegar þetta er skrifað hafa alls 292 björgunarsveitarmenn tekið þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur. Björgunarsveitirnar komu fyrst formlega að málinu á sunnudagskvöld. Sporleitarhundurinn Perla var fengin til að rekja slóð Birnu frá skemmtistaðnum Húrra en slóðin kólnaði við Laugaveg 31. „Á mánudeginum var ákveðið að kalla út sérhæft leitarfólk og kanna mjög vel svæðið í 300 metra radíus frá þessum punkti þar sem slóðin hvarf. Það fólk fór inn í öll port, kjallara, ruslageymslur og ruslafötur. Það velti við hverjum steini,“ segir Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Á mánudag var einnig leitað í Urriðaholti og í Flatahrauni þar sem farsími Birnu tengdist símamastri á gömlu slökkvistöðinni. „Á þeim tímapunkti höfðum við ekkert annað,“ segir Þorsteinn. Seint á mánudagskvöld fundust Dr. Martens skór Birnu við Hafnarfjarðarhöfn. Þá fór mikið púður í að kemba höfnina. Átta kafarar frá ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunni leituðu hennar í höfninni. Þá var notaður ómannaður dvergkafbátur sem ber nafnið Gavia og er íslenskt hugvit. „Þetta er frábært tæki til að geta nánast ljósmyndað fyrir okkur botninn,“ segir Ásgeir Þór. Í gær fór mesta púður björgunarsveitanna og lögreglu í að skipuleggja leit helgarinnar sem verður ein sú umfangsmesta sem ráðist hefur verið í. Björgunarsveitarfólk af Suðurlandi og Vesturlandi hefur verið kallað til leitarinnar og leitin hefur verið skipulögð í þaula. Hafa svæði verið útilokuð sem eru ófær bílum eins og Kia Rio sem notast var við. „Í þessu máli eru vísbendingar af gríðarlega skornum skammti svo það er ekkert sem segir okkur að við eigum að bera niður á einum stað frekar en öðrum,“ segir Þorsteinn. 292 björgunarsveitarmenn hafa nú þegar tekið þátt í leitinni að Birnu. Þeir verða mun fleiri um helgina ef áætlanir standa.vísir/eyþórHundarnir ótrúlega nákvæmir Lögregla og björgunarsveitir hafa nýtt sér leitarhunda við leitina að Birnu Brjánsdóttur. Sporleitarhundurinn Perla fékk lyktarsýni af Birnu áður en leitin hófst og rakti svo ferðir hennar frá Húrra að Laugavegi 31. Perla var einnig fengin til að leita hennar í Flatahrauni en án nokkurs árangurs. Annars staðar hefur snjóflóðaleitarhundum verið beitt við leit. Hundarnir eru þjálfaðir til að leita að fólki á víðavangi. „Þegar þeir merkja eitthvað þá er yfirleitt fótur fyrir því. Hvert einasta tilvik þar sem hundur gefur eitthvað til kynna er skoðað mjög gaumgæfilega,“ segir Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Birna Brjánsdóttir Tengdar fréttir Lögregla lýsir eftir ökumanni hvítrar bifreiðar í tengslum við hvarf Birnu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni hvíta bílsins, sem var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar kl. 12.24. 20. janúar 2017 16:16 Skipverjarnir höfðu um 100 klukkustundir til þess að samræma framburð Grænlensku skipverjarnir tveir sem úrskurðaðir hafa verið í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um að eiga aðild að hvarfi Birnu Brjánsdóttur höfðu um 100 klukkustundir til þess að samræma framburð, sé miðað við það að Birna hverfur snemma á laugardagsmorgun og mennirnir eru ekki handteknir fyrr en um borð í Polar Nanoq fyrr en í hádeginu á miðvikudegi. 20. janúar 2017 11:45 Rauði bíllinn ekki á hafnarsvæðinu í um fjóra klukkutíma á laugardagsmorgun Lögregluna vantar upplýsingar um ferðir rauðu Kia Rio-bifreiðarinnar á milli klukkan 7 og 11:30. 20. janúar 2017 14:45 Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Tveir á vinnupalli sem hrundi Innlent Fleiri fréttir Hefði þegið símtal frá Jóhannesi Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum Vill ekki að eftirlitið kæfi hlaðvörpin Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Sjá meira
Lögregla lýsir eftir ökumanni hvítrar bifreiðar í tengslum við hvarf Birnu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni hvíta bílsins, sem var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar kl. 12.24. 20. janúar 2017 16:16
Skipverjarnir höfðu um 100 klukkustundir til þess að samræma framburð Grænlensku skipverjarnir tveir sem úrskurðaðir hafa verið í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um að eiga aðild að hvarfi Birnu Brjánsdóttur höfðu um 100 klukkustundir til þess að samræma framburð, sé miðað við það að Birna hverfur snemma á laugardagsmorgun og mennirnir eru ekki handteknir fyrr en um borð í Polar Nanoq fyrr en í hádeginu á miðvikudegi. 20. janúar 2017 11:45
Rauði bíllinn ekki á hafnarsvæðinu í um fjóra klukkutíma á laugardagsmorgun Lögregluna vantar upplýsingar um ferðir rauðu Kia Rio-bifreiðarinnar á milli klukkan 7 og 11:30. 20. janúar 2017 14:45