Árið 2017 fer ekki vel af stað hjá Mosfellingum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2017 15:15 Árni Bragi Eyjólfsson skoraði átta mörk í gær en það dugði ekki á móti Val. Vísir/Anton
Lið Aftureldingar í Olís-deild karla í handbolta kemur ekki vel undan HM-fríinu. Mosfellingar töpuðu á móti Val á heimavelli í gær og hafa ekki unnið deildarleik á nýju ári. Afturelding hefur nú spilað þrjá deildarleiki á árinu 2017 og aðeins fengið í þeim eitt stig af sex mögulegum. Tveir af þessum leikjum hafa verið í Íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ. Afturelding á nú á hættu að missa toppsætið til Hauka á morgun en Haukarnir fá þá Selfyssinga í heimsókn á Ásvelli. Haukar hafa unnið upp forskotið hægt og rólega og vantar nú bara eitt stig til að ná Mosfellingum á toppnum. Aðeins eitt lið hefur fengið færri stig á árinu 2017 en Afturelding en Framarar eru enn stigalausir á árinu. Safamýrarpiltar geta reyndar bætt úr því á móti ÍBV á laugardaginn þegar þeir spila sinn leik í 19. umferðinni. Afturelding vann átta af fyrstu níu leikjum sínum í deildinni og tapaði aðeins tveimur deildarleikjum frá 15. september til 15. desember eða í þrjá mánuði. Liðið er nú búið að tapa jafnmörgum leikjum á síðustu þrettán dögum. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn á þessu tímabili sem Mosfellingar leik þrjá deildarleiki í röð án þess að vinna.Stig liða í Olís-deild karla á árinu 2017: FH 4 stig (2 leikir) Stjarnan 4 stig (2 leikir) ÍBV 3 stig (2 leikir) Valur 3 stig (3 leikir) Haukar 2 stig (2 leikir) Akureyri 2 stig (2 leikir) Grótta 2 stig (2 leikir) Selfoss 1 stig (2 leikir)Afturelding 1 stig (3 leikir) Fram 0 stig (2 leikir)
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira