Fá tækifæri í kvöld til að sýna hvað þær hefðu gert í bikarúrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2017 14:30 Úr síðasta leik Keflavíkur og Snæfells. Ariana Moorer sækir en til varnar eru systurnar Gunnhildur og Berglind Gunnarsdætur. Vísir/Daníel Þór
Keflavíkurkonur spila í kvöld sinn fyrsta leik sem bikarmeistarar og það er enginn smá leikur því Íslandsmeistarar og fyrrum bikarmeistarar Snæfells koma þá í heimsókn á Sunnubrautina í Keflavík. Liðin eru í baráttu um deildarmeistaratitilinn við Skallagrím, jöfn að stigum fyrir leikinn með 30 stig hvort eða tveimur stigum minna en topplið Skallagríms. Leikur Keflavíkur og Snæfells verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3 og hefst útsendingin klukkan 19.05 en leikurinn sjálfur klukkan 19.15. Keflavík varð bikarmeistari á laugardaginn eftir 65-62 sigur á Skallagrími í úrslitaleiknum. Keflavík var aðeins einu skoti frá því að mæta Snæfellsliðinu í úrslitaleiknum. Skallagrímur vann Snæfell 70-68 í undanúrslitunum þar sem lokaskot Hólmara geigaði en það hefði komið liðinu í úrslitaleikinn. Snæfellskonur fá því tækifæri í kvöld til að sýna hvað þær hefðu gert í bikarúrslitaleiknum fyrir fjórum dögum síðan. Þetta er þriðji leikur liðanna á tímabilinu en Snæfell hefur unnið hina tvo þar af þann síðasta leik liðanna í framlengingu í Keflavík. Vinni Snæfell leikinn í kvöld verður liðin með tveggja stiga forystu á Keflavík auk þess að vera með gulltryggða stöðu í innbyrðisleikjum liðanna í vetur. Vinni Keflavík leikinn verður staðan orðin 2-1 í innbyrðisleikjum liðanna og því verður innbyrðisstaðan undir í síðasta innbyrðisleik liðanna í Stykkishólmi.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira